71. fundur

27.05.2026 11:00

71. fundur sjálfbærniráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Grænásbraut 910 þann 27. maí 2026 kl. 11:00

Viðstaddir: Guðný Birna Guðmundsdóttir formaður og Bjarni Halldór Heiðuson.

Að auki sátu fundinn Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Hjörtur Magnús Guðbjartsson boðaði forföll og sat Bjarni Halldór Heiðuson fundinn í hans stað. Athena Júlía Józefudóttir, Guðni Ívar Guðmundsson og Þóranna Kristín Jónsdóttir boðuðu forföll.

1. Aðlögunaraðgerðir vegna loftslagsbreytinga (2022110136)

Reykjanesbær er eitt af fimm þátttökusveitarfélögum í verkefni C.10 - Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga. Verkefnið er aðgerð í núgildandi byggðaáætlun stjórnvalda og er unnið í samstarfi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, Byggðastofnunar, Veðurstofu Íslands og Skipulagsstofnunar. Á grundvelli viðkvæmnimatsins var útbúinn aðgerðabanki með 30 aðgerðum, þar af níu forgangsaðgerðum sem miða að því að efla seiglu samfélagsins til skemmri og lengri tíma og draga úr tjónnæmi Reykjanesbæjar af völdum loftslagsáskorana, sér í lagi vegna ofsaveðurs.

Sjálfbærniráð telur mikilvægt að framfylgja þeim aðlögunaraðgerðum sem fram koma í skýrslu Byggðastofnunar, Aðlögun Reykjanesbæjar að áhrifum loftslagsbreytinga. Sjálfbærniráð vísar málinu til bæjarráðs og ítrekar mikilvægi þess að aðgerðalistinn fái ábyrgðarmann, einkum í ljósi fyrri sögu um ofsaveður og framtíðarsviðsmynda.

Fylgigögn:

Aðlögun Reykjanesbæjar að áhrifum loftslagsbreytinga - skýrsla þróunarsviðs Byggðastofnunar

2. Svæðisáætlun í landgræðslu og skógrækt (2021040047)

Svæðisáætlun Reykjanesbæjar í landgræðslu og skógrækt var gefin út árið 2025 og hefur nýst til fjölmargra verkefna. Reykjanesbær fékk úthlutað styrk úr Landbótasjóði Lands og skógar fyrir árið 2026 að upphæð 999.000 kr., einnig fékk sveitarfélagið styrk árið 2025 að upphæð 382.000 kr. Styrkurinn er ætlaður til dreifingar áburðar annars vegar og sáningar á birki hins vegar.

Sjálfbærniráð fagnar samningum við atNorth og Crusoe um skógrækt á Njarðvíkurheiði til næstu 5 ára. Samningarnir gera ráð fyrir gróðursetningu á 65.000 skógarplöntum. Í Innri-Njarðvík er einnig farið af stað Smáskógaverkefni og stendur til að gróðursetja 10.000 skógarplöntur.

Sjálfbærniráð fagnar einnig metnaðarfullri svæðisáætlun Reykjanesbæjar sem stuðlar að grænni og betri bæ.

Fylgigögn:

Svæðisáætlun í landgræðslu og skógrækt í Reykjanesbæ

3. Endurheimt votlendis (2025040420)

Sjálfbærniráð leggur áherslu á að gætt verði að votlendinu á Fitjum og lífríkinu þar en það er í raun eina votlendið innan sveitarfélagsins. Svæðið er mikilvægt útivistarsvæði fyrir íbúa Reykjanesbæjar og styður við líffræðilega fjölbreytni.

4. Græn stefna Reykjanesbæjar (2024090580)

Lagt er fram Græna planið sem er heildarstefna Reykjavíkurborgar til ársins 2030. Stefnan er rammi utan um framtíðarsýn borgarinnar og meginmarkmið sem stýra áherslum þvert á alla starfsemi borgarinnar. Meginmarkmið stefnunnar eru byggð á þremur víddum sjálfbærni: umhverfi, efnahag og samfélagi. Sjálfbærni þarf að taka tillit til allra þessara þátta.

Sjálfbærniráð telur mikilvægt að Reykjanesbær setji sér heildræna græna stefnu sem byggir á UFS þáttum sem eru umhverfi, félagslegir þættir og stjórnarhættir. Þannig getur sveitarfélagið með markmiðasetningu og upplýsingagjöf sýnt samfélagslega ábyrgð í verki. Undir slíkri stefnu ætti sjálfbær innkaupa- og fjármálastefna heima en einnig umhverfis- og loftslagsstefna sveitarfélagsins. Sjálfbærniráð leggur til að málinu verði vísað til bæjarstjóra, fjármálastjóra og innkaupastjóra til skoðunar.

5. Hátæknibrennslustöð (2026010544)

Sjálfbærniráð telur mikilvægt að Reykjanesbær taki formlega afstöðu til hátæknibrennslustöðvar byggða á gögnum og greiningum sem taka til umhverfis, félagslegra og fjárhagslegra þátta. Hagsmunahópur sorpsamlaga og ráðuneyta hefur gefið út sérfræðiskýrslur sem benda til þess að bygging 140 þúsunda tonna hátæknibrennslustöðvar í Helguvík sé fjárhagslega hagkvæmasti kosturinn. Varðandi staðsetningu í Helguvík þarf að hafa í huga fyrri sögu svæðisins tengda afstöðu íbúa en einnig flutningsleiðir sorps. Tvöföldun Reykjanesbrautar er ekki lokið en starfsemi hátæknibrennslustöðvar felur í sér þungaflutninga í stórauknum mæli og mögulega skipaflutninga. Sjálfbærniráð telur brýnt að greina hagsmuni Reykjanesbæjar vegna verkefnisins.

Sjálfbærniráð vísar málinu til bæjarstjóra til frekari skoðunar.

Fylgigögn:

Forverkefni um framtíðarlausn til meðhöndlunar brennanlegs úrgangs í stað urðunar - skýrsla stýrihóps
Samantekt um byggingu brennslustöðvar á vegum Sorpu bs.
Forverkefni nr. 2: Samanburður tveggja kosta um uppbyggingu hátæknibrennslu á Íslandi - skýrsla stýrihóps

6. Sjálfbærniuppgjör 2021-2025 (2021010385)

Sjálfbærniráð fagnar góðu sjálfbærniuppgjöri ársins 2025. Heildarlosun sveitarfélagsins minnkar í umfangi 1, 2 og 3 þegar litið er til markaðsaðgerða. Heildarorkunotkun minnkar um tæpar 7.000 kWst á milli ára og einnig minnkar notkun jarðefnaeldsneytis talsvert.

Sjálfbærniuppgjör er mikilvægur þáttur í rekstri sveitarfélagsins og leggur sjálfbærniráð áherslu á að því verði haldið áfram.

Fylgigögn:

Sjálfbærniskýrsla Reykjanesbæjar 2021
Sjálfbærniuppgjör Reykjanesbæjar 2022
Sjálfbærniuppgjör Reykjanesbæjar 2023
Sjálfbærniuppgjör Reykjanesbæjar 2024

7. Sveitarstjórnarkosningar (2026010121)

Sjálfbærniráð hefur gefið út tvær kosningaskýrslur tengdar fyrirkomulagi kosninga og aukinni kosningaþátttöku. Kosningaþátttaka jókst lítillega í sveitarstjórnarkosningunum nú frá kosningunum 2022 eða um tæp 5 prósentustig, úr 47,1% í 51,6%. Reykjanesbær fjölgaði kjörstöðum úr einum í þrjá til að auka kosningaþátttöku auk þess sem haldnar voru vinnustofur fyrir íbúa af erlendum uppruna. Mikilvægt er að unnið verði áfram með greiningar á kosningaþátttöku til að efla áhuga íbúa á kosningum.

Sjálfbærniráð vísar málinu til persónuverndarfulltrúa sem fór með verkefnastjórn vegna sveitarstjórnarkosninganna.

8. Samskipti við ríki og sveitarfélög (2025090369)

Sjálfbærniráð hvetur til aukinna samskipta og/eða rýni á útgefnum grænbókum og hvítbókum ríkisins hvað varðar verkefni sveitarfélaga.

9. Sjálfbærnimál á vef Reykjanesbæjar (2024090584)

Deildarstjóra umhverfismála er falið að koma sjálfbærniuppgjörum og mælaborðum sjálfbærnimála á vef Reykjanesbæjar til að auka gegnsæi sjálfbærnimála fyrir íbúa sveitarfélagsins.

10. Umhverfis- og loftslagsstefna Reykjanesbæjar (2020021391)

Deildarstjóra umhverfismála er falið að halda áfram með málið í samræmi við umræður á fundinum og bókun í lið 4 í þessari fundargerð. Stefnan þarf að taka til UFS þátta: umhverfis, félagslegra þátta og stjórnarhátta með tímasettri aðgerðaáætlun, ábyrgðaraðila og fjármögnun.

Sjálfbærniráð telur mikilvægt að sjálfbærni verði höfð að leiðarljósi í allri vinnu Reykjanesbæjar í samræmi við kröfur um nútímasveitarfélög.

Fylgigögn:

Umhverfis- og loftslagsstefna Reykjanesbæjar


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:26. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 2. júní 2026.