- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
- Fánahyllar
Viðstaddir: Gunnar Felix Rúnarsson, Aðalgeir Jónsson, Jón Már Sverrisson, Birgir Már Bragason og Hjörtur Magnús Guðbjartsson.
Að auki sátu fundinn Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi, Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur og Erna María Svavarsdóttir ritari.
Róbert Jóhann Guðmundsson boðar forföll, Birgir Már Bragason sat fyrir hann.
Skipulagsráð samþykkti 5-0 að taka á dagskrá málið Siðareglur kjörinna fulltrúa (2026050308). Fjallað var um málið undir dagskrárlið 12.
Skipulagsráð samþykkti 5-0 að taka á dagskrá málið Skipun í samráðshópa (2026020457). Fjallað var um málið undir dagskrárlið 13.
Erindi frestað.
Tilgangur skipulagsins er að styrkja, treysta og setja stefnu um uppbyggingu og yfirbragð svæðisins. Kynningu vinnslutillögu og hönnunarleiðbeininga fyrir neðri hluta Hafnargötu með Ægisgötu er lokið sbr. gögn Nordic Office of Architecture.
Samantekt umsagna og viðbrögð liggja fyrir. Skipulagsráð samþykkir að unnin verði tillaga að deiliskipulagi fyrir svæðið í samræmi við umræður á fundinum og lögð fyrir ráðið fyrir auglýsingu.
Fylgigögn:
Hafnargata - athugasemdir frá Skipulagsgátt
Hafnargata - deiliskipulagsuppdráttur
Hafnargata - greingargerð deiliskipulags
JeES arkitektar fh. Fagriblaks frá Keflavík ehf. leggja fram fyrirspurn um uppbyggingu við Hafnargötu 38. Reiturinn er hluti af stærra svæði við Hafnargötu þar sem yfirstandandi er heildstæð skipulagsvinna fyrir Hafnargötusvæðið. Hafnargata 38 er þó afmarkaður reitur á jaðri þess skipulagssvæðis og er tillagan talin falla vel að þeim meginhugmyndum sem fram koma í skipulagslýsingu og þeirri stefnumótun sem þegar er í vinnslu fyrir svæðið. Markmið fyrirspurnarinnar er að kanna hvort heimilt verði að vinna deiliskipulag eða breytingu á deiliskipulagi fyrir Hafnargötu 38 sem sjálfstætt skipulagsmál, samhliða yfirstandandi heildarskipulagsvinnu. Með því móti væri unnt að flýta undirbúningi og framgangi verkefnisins án þess að raska eða tefja heildarskipulag Hafnargötusvæðisins. Í frumdrögum er lögð áhersla á hófstillta og vandaða uppbyggingu á miðlægri lóð, þar sem núverandi hús frá árinu 1893 fær að halda sér að mestu og ný uppbygging myndar samtal við eldri byggð með tilliti til mælikvarða, þakforms, hlutfalla, efnisvals og götumyndar. Tillagan gerir ráð fyrir blandaðri miðbæjarnýtingu, virkri jarðhæð að Hafnargötu og bættri tengingu að Ránargötu, þar sem horft er til gönguvænna lausna, gróðurs og vandaðs frágangs.
Skipulagsráð tekur vel í erindið og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram með umsækjanda. Um er að ræða töluvert byggingarmagn og huga þarf að bílastæðum.
JeES arkitektar fh. Ásgarðs fasteignafélags ehf. óska eftir heimild fyrir breytingu deiliskipulags fyrir Hafnargötu 91, Iðjustíg 1 og Pósthússtræti 5, 7 og 9. Breytingin felur einkum í sér að hluti lóðar Hafnargötu 91 sameinast lóð Iðjustígs 1, þannig að lóð Iðjustígs 1 verður 5.442 m² og lóð Hafnargötu 91 verður 4.015 m². Heimilt verður að byggja 4-7 hæða fjölbýlishús með verslunar- og þjónustuhúsnæði á fyrstu hæð og íbúðum á efri hæðum, auk bílgeymslu neðanjarðar. Gert er ráð fyrir allt að 94 íbúðum.
Markmið breytingarinnar er að styrkja miðbæjarstarfsemi, nýta betur þegar raskað þéttbýlissvæði, bæta götumynd við Hafnargötu/Njarðarbraut og skapa skýrari heimildir til uppbyggingar í samræmi við Aðalskipulag Reykjanesbæjar 2020-2035. Fyrir liggur heimild landeigenda fyrir deiliskipulagi fyrir reitinn.
Skipulagsráð heimilar 3-2 að auglýsa deiliskipulagstillöguna.
Minnihluti skipulagsráðs lagði fram eftirfarandi bókun:
Greinargóð fylgigögn sýna svart á hvítu hversu mikil aukning á byggingarmagni er í húfi. Að fara frá tveimur 2 hæða byggingum í eina stóra byggingu sem verður allt að 7 hæðir er algjör bylting sem sætir furðu í ljósi umræðu bæði í skipulagsráði og í bæjarstjórn af hálfu fulltrúa núverandi meirihluta. Iðjustígur nýtir sömu umferðarmannvirki og Akademíureiturinn en aðeins 250 metrar eru á milli reitanna tveggja og því tvísýnt hvernig yfirlýsingar um umferðarteppur gilda ekki til jafns á báðum stöðum. Hugsanlega er þetta skipulag grunnurinn að nýrri blokkastefnu Sjálfstæðisflokks og Miðflokks.
Hjörtur Magnús Guðbjartsson (S) og Birgir Már Bragason (B).
Fylgigögn:
Reykjanesbær óskar heimildar til að koma fyrir færanlegum kennslustofum við Öspina að Brekkustíg 11 sbr. uppdrætti Verkfræðistofu Suðurnesja dags. 3. júní 2026.
Skipulagsráð telur að breytingin á deiliskipulagi varði ekki hagsmuni annarra en sveitafélagsins og umsækjanda og samþykkir því breytinguna skv. 44. grein skipulagslaga málsgrein 3. Samþykkt landnotkun til þriggja ára.
Fylgigögn:
Öspin aukakennslustofur - byggingarnefndarsett
Sóknarnefnd Njarðvíkurkirkju sækja um stækkun á lóð við kirkjuna þ.e. frá kirkju að Brekkustíg. Áætlun um nýtingu á svæðinu er fyrir framtíðar viðbyggingu við kirkjuna t.d. safnaðarheimili og starfsmannaaðstöðu.
Lóðarstækkun samþykkt. Breytingin verði sveitarfélaginu að kostnaðarlausu.
Fylgigögn:
Mynd af lóð við Njarðvíkurkirkju - Brekkustíg
Óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi, en galli í töflu greinargerðar er til þess að ekki er nægilegt byggingarmagn fyrir þann fjölda íbúða sem aðalskipulagið gerir ráð fyrir.
Erindi samþykkt. Skipulagsráð samþykkir að auglýsa lýsingu og vinnslutillögu samhliða.
Fylgigögn:
Lýsing og vinnslutillaga - aðalskipulagsbreyting - M6 Hólagata
Samkvæmt 35. gr. skipulagslaga metur sveitarstjórn hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulagið að loknum sveitarstjórnarkosningum.
Skipulagsráð leggur til að í haust verði skipaður starfshópur um endurskoðun aðalskipulags.
Verne Global ehf. leggur fram umsókn um framkvæmdarleyfi til að fara í jarðvinnu við nýtt gagnaver á 24.000 m2 lóðinni Valhallarbraut 868.
Vegna stækkunar gagnavers Verne á Ásbrú hyggst Verne byggja VDC04 á 24.000 m2 lóð til austurs. Framkvæmdin mun ekki hafa áhrif á umhverfið eða breyta ásýnd þess. Verne telur að áhrif fyrirhugaðra framkvæmda á gróður verði óveruleg. Í dag eru malbikuð bílasvæði 1/4 af lóðinni, hitt mói og engir innviðir liggja um eða eru á lóðinni. Jafnframt leggur Verne áherslu á að allur frágangur á framkvæmdasvæðinu verði til fyrirmyndar.
Erindi samþykkt skv. 13. gr. og 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Fylgigögn:
Framkvæmdaleyfisumsókn - Erindi Verne VDC04
Adrían Ioan Marincas sækir um lóðina Brekadalur 16.
Lóðarumsókn samþykkt.
Cozy Campers sækja um lóðina Fuglavík 23.
Lóðarumsókn samþykkt.
Siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Reykjanesbæ lagðar fram til kynningar. Kjörnum fulltrúum ber að tileinka sér þessar siðareglur og lýsa því yfir að þeir séu reiðubúnir til að hafa þessar siðareglur að leiðarljósi. Kjörnir fulltrúar munu undirrita siðareglurnar því til staðfestingar.
Skipulagsráð kaus í eftirtalda samráðshópa:
Samráðshópur HB64: Gunnar Felix Rúnarsson og Róbert Jóhann Guðmundsson.
Samráðsnefnd um þróun hafnarsvæða: Gunnar Felix Rúnarsson og Hjörtur Magnús Guðbjartsson.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:00. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarráðs 25. júní 2026.