25. fundur

29.01.2026 14:00

25. fundur stjórnar eignasjóðs Reykjanesbæjar var haldinn að Grænásbraut 910 þann 29. janúar 2026 kl. 14:00

Viðstaddir: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður, Birgir Már Bragason, Friðjón Einarsson, Grétar I. Guðlaugsson, Sigurður Garðarsson og Harpa Björg Sævarsdóttir.

Að auki sátu fundinn Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu, Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

1. Öryggiskerfi Reykjanesbæjar - vöktun, prófanir og viðhald (2021110108)

Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu gerði grein fyrir málinu.

2. Leikskólinn Hjallatún - innanhússbreytingar (2026010238)

Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu fór yfir þarfagreiningu vegna beiðni um breytingar á leikskólanum Hjallatúni.

Stjórn eignasjóðs samþykkir að unnin verði nánari hönnun og kostnaðaráætlun í samræmi við samþykkt verklag.

3. Grænásbraut 910 - lýsing á lóð (2023030333)

Lagt fram.

4. Njarðvíkurbraut 51-66 (2019052691)

Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs gerði grein fyrir stöðu mála varðandi húsnæði sveitarfélagsins að Njarðvíkurbraut 51-66.

Stjórn eignasjóðs felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og deildarstjóra eignaumsýslu að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

5. Fjárfestingar og viðhald 2025 - uppgjör (2024090522)

Uppgjör vegna fjárfestinga og viðhalds fyrir árið 2025 lagt fram.

6. Þórustígur 3 (2025100409)

Bæjarráð fól stjórn eignasjóðs að móta framtíðarsýn fyrir húsnæðið að Þórustíg 3.

Stjórn eignasjóðs felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og deildarstjóra eignaumsýslu að vinna málið áfram.

7. Tjarnargata 12 – staða framkvæmda (2019050839)

Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu fór yfir stöðu framkvæmda að Tjarnargötu 12.

8. Mainmanager - uppsögn samnings (2021020366)

Ákveðið var að skipta um húsumsjónarkerfi eignaumsýslu Reykjanesbæjar og hefur samningi um hugbúnaðinn Mainmanager því verið sagt upp.

9. Búnaðarkaup - skönnunar- og myndvinnslulausn (2026010246)

Eignaumsýsla Reykjanesbæjar fór í ítarlega skoðun á búnaði og hugbúnaði til kortlagningar á viðhaldi mannvirkja, skráningar á búnaði og þrívíddarskönnunar í framkvæmdum. Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu fór yfir þann hugbúnað sem varð fyrir valinu og hvernig eignaumsýslan mun nýta sér þessa tækni í framtíðinni.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:49. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 17. febrúar 2026.