28. fundur

16.04.2026 14:00

28. fundur stjórnar eignasjóðs Reykjanesbæjar var haldinn að Grænásbraut 910 þann 16. apríl 2026 kl. 14:00

Viðstaddir: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður, Birgir Már Bragason, Friðjón Einarsson, Grétar I. Guðlaugsson, Harpa Björg Sævarsdóttir og Sigurður Garðarsson.

Að auki sátu fundinn Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu, Guðlaugur Helgi Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, Magnþór Breki Ragnarsson, verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

1. Svítur við Myllubakkaskóla (2026030446)

Tillögur að nýjum staðsetningum á tveimur svítum sem nú eru á lóð Myllubakkaskóla lagðar fram. Á fundi bæjarráðs voru tillögurnar samþykktar.

Stjórn eignasjóðs samþykkir að ein svíta verði staðsett við gervigrasvöll við Reykjaneshöll og ein verði nýtt sem viðbótarhúsnæði við Ösp að Brekkustíg 11. Flutningur og niðursetning er kostað af framkvæmdalykli Myllubakkaskóla, tengingar og annar kostnaður af ófyrirséðum kostnaði eignaumsýslu.

2. Fjárfestingaverkefni - uppgjör fyrsta ársfjórðungs (2025080340)

Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu fór yfir stöðu og kostnað fjárfestingaverkefna á fyrsta ársfjórðungi 2026. Verkefni eru á áætlun og innan fjárheimilda.

3. Viðhaldsframkvæmdir - uppgjör fyrsta ársfjórðungs (2025100210)

Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu fór yfir stöðu viðhaldsframkvæmda á fyrsta ársfjórðungi 2026. Verkefni eru á áætlun og innan fjárheimilda. Þó hefur verið meira af uppfærsluverkefnum á fyrsta ársfjórðungi en áætlað var.

Stjórn eignasjóðs felur deildarstjóra eignaumsýslu að ræða við sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs um skiptingu viðhalds og reksturs á bókhaldslykla.

4. JBÓ Völlur, Afreksbraut 10 – staða framkvæmda (2026020395)

Upplýsingar um stöðu framkvæmda við JBÓ völlinn að Afreksbraut 10 og kostnað verkefnisins lagðar fram og er verkið á áætlun og innan fjárheimilda.

5. Leikskólinn Hjallatún – innanhússbreytingar (2026010238)

Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu fór yfir hönnun breytinga á húsnæði leikskólans Hjallatúns, sem fela í sér að öll aðstaða starfsmanna verður undir sama þaki og betri nýting verður á mannvirkinu, auk þess sem laus kennslustofa sem staðsett er á lóðinni losnar. Aðaluppdrættir eru tilbúnir og frumkostnaðaráætlun liggur fyrir.

Fylgigögn:

Innanhússbreytingar á leikskólanum Hjallatúni - hönnun í vinnslu

6. Framkvæmdaóskir - uppfærslur eða fjárfestingar (2026030449)

Uppfærður listi yfir óskir um framkvæmdir lagður fram.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:49. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 5. maí 2026.