- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Guðbergur Reynisson formaður, Brynjólfur Sveinn Ívarsson, Eysteinn Eyjólfsson, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Einar Þór Guðmundsson.
Að auki sátu fundinn Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, Arnar Þór Smárason, verkefnastjóri framkvæmda veitna, Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu, Bjarni Þór Karlsson verkefnastjóri framkvæmda, Einar Jónsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar, Berglind Ásgeirsdóttir garðyrkjustjóri og Erna María Svavarsdóttir ritari.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir 5-0 að setja á dagskrá málið Fundargerð samráðshóps um hringrásariðngarð í Helguvík og Bergvík HB64 (2023100396), fjallað var um málið undir dagskrárlið 12.
Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, kynnti mælaborð umhverfis- og framkvæmdasviðs fyrir annan ársfjórðung ársins 2026.
a. Guðlaugur Helgi Sigurjónsson deildarstjóri kynnti starfsemi umhverfisdeildar.
b. Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri kynnti starfsemi eignaumsýslu.
c. Arnar Þór Smárason verkefnastjóri kynnti starfsemi veitna sveitarfélagsins.
Samningur um skógrækt á milli Reykjanesbæjar og atNorth ehf. sem var samþykktur á 1546. fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar þann. 8. janúar 2026 lagður fram til kynningar.
Á vegum hvers sveitarfélags starfar þriggja til sjö manna náttúruverndarnefnd sem sveitarstjórn kýs til fjögurra ára í senn. Sveitarstjórn ákveður fjölda nefndarmanna og velur jafnframt formann og setur nefndinni erindisbréf. Setja þarf á laggirnar Náttúruverndarnefnd Reykjanesbæjar en lagt er til að umhverfis- og framkvæmdaráð verði Náttúruverndarnefnd og taki að sér verkefni og starfsemi nefndarinnar.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar erindinu til forsetanefndar þar sem erindisbréf ráðsins þarf að endurspegla framkomna tillögu.
Fylgigögn:
Umhverfisverndarnefnd - upplýsingarit fyrir sveitarfélög
Lagt fram erindi frá innviðaráðuneytinu vegna vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga, þar sem óskað er eftir svörum fyrir 21. september nk. frá sveitarfélögum sem ætlað er að draga fram heildarmynd um stöðu, áskoranir og tækifæri sveitarstjórnarstigsins. Bæjarráð fól sviðsstjórum að undirbúa drög að svari fyrir hvert ráð og leggja fyrir fyrsta fund í ágúst.
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra að leggja fram tillögu að svörum umhverfis- og framkvæmdasviðs.
Tillaga að verklagi samráðsnefndarinnar lögð fram.
Nefndin fór yfir framkomnar tilnefningar frá íbúum. Viðurkenningar verða afhentar á Ljósanótt.
Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur fram eftirfarandi bókun:
Á 1. fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs samþykkti ráðið, í kjölfar þess að hafa tekið við undirskriftalista frá íbúum hverfisins, að ráðast í aðgerðir til að auka umferðaröryggi í Ásahverfi. Aðgerðirnar fólust meðal annars í lokun Bergáss að norðanverðu vegna sívaxandi gegnumaksturs um götuna og vísbendingar eru um að jákvæð breyting hafi orðið á umferð um hverfið.
Lokun Bergáss er þó aðeins fyrsta skrefið. Enn er mikilvægt að bæta aðgengi bæði akandi og gangandi vegfarenda inn og út úr hverfinu, enda hefur aukin umferð á Njarðarbraut skapað þar verulegar áskoranir.
Þótt sambærilegar áskoranir séu víðar í bænum telur ráðið mikilvægt að halda áfram markvissum úrbótum. Ráðið ítrekar mikilvægi fyrirhugaðra framkvæmda við bráðabirgðahringtorg á gatnamótum Bergáss og Njarðarbrautar, lagningu göngustíga frá Fitjum og Ásahverfi sem tengja Fitjabakka og Fitjabraut við göngustígakerfið, sem og fyrirhuguðum undirgöngum undir Grænásbrekku fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
Jafnframt leggur ráðið áherslu á að framkvæmdum við svokallaðan ofanbyggðaveg verði flýtt, sem myndi liggja frá Vallarási að Grænásvegi sunnan Reykjanesbrautar. Slík tenging myndi draga enn frekar úr gegnumumferð um íbúagötur og bæta umferðaröryggi í hverfinu.
Á fyrsta fundi ráðsins var einnig samþykkt að loka fyrir vinstri beygju af Grænásvegi inn á Njarðarbraut. Sú breyting hefur nú tekið gildi. Á næstu dögum verða jafnframt gerðar þrengingar á norðvesturhorni gatnamótanna til að bæta öryggi gangandi vegfarenda enn frekar.
Ráðið áréttar að þessar breytingar eru bráðabirgðalausnir á meðan unnið er að hönnun varanlegra úrbóta á þessum fjölförnu gatnamótum og hvetur jafnframt til þess að þeirri vinnu verði hraðað.
Fylgigögn:
Erindi - umferðaöryggi gangandi vegfarenda
Lagðar eru fram tillögur að heildstæðri úttekt á gangstígakerfi sveitarfélagsins með það að markmiði að vinna að úrbótum og forgangsröðun verkefna.
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra að fara yfir umferðaröryggismál, stöðu og framvindu á verkefnum á næsta fundi ráðsins.
Sviðsstjóri fer yfir þau fjárfestingarverkefni sem þarf að taka afstöðu til vegna gerðar fjárhagsáætlunar 2027.
Umhverfis- og framkvæmdaráð ræddi tillögu að fundartímum ráðsins.
Fundargerð samráðshóps um hringrásariðngarð í Helguvík og Bergvík HB64 lögð fram.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:47. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 18. ágúst 2026.