- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Róbert Jóhann Guðmundsson formaður, Eysteinn Eyjólfsson, Guðbergur Reynisson, Jón Már Sverrisson og Helga María Finnbjörnsdóttir.
Að auki sátu fundinn Andrea Elísabet Ragnarsdóttir fulltrúi ungmennaráðs, Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi, Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur, Sveinn Björnsson byggingarfulltrúi, Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála og Erna María Svavarsdóttir ritari.
Gunnar Felix Rúnarsson boðaði forföll, Jón Már Sverrisson sat fyrir hann.
Laugar ehf. leggja fram vinnslutillögu að breytingu á deiliskipulagi Fitja og breytingu á skilmálum aðalskipulags fyrir miðsvæði M4 sbr. uppdrátt Gláma/Kím dags 30. nóvember 2025 og kynningargögn Populus og Úti og Inni arkitekta dags. júní 2024. Auglýsingu vinnslutillögu er lokið. https://skipulagsgatt.is/issues/2026/81
Umhverfis- og skipulagsráð tekur undir framkomnar athugasemdir um að nauðsynlegt sé að kanna til fulls hvort innviðir séu fyrir hendi fyrir áætlaðan rekstur á svæðinu og kanna þurfi til hlítar mögulega mengun af fyrrum urðunarsvæði.
Fylgigögn:
Fitjar - vinnslutillaga að deiliskipulagsbreytingu
Iceland World Class Wellness Hotel - kynning
Lögð fram afgreiðsla Skipulagsstofnunar til kynningar. https://skipulagsgatt.is/issues/2025/1405
Lagt fram.
Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki II fyrir einbýlishús sbr. aðaluppdrætti Beimar dags. 26. janúar 2026. Skv. gildandi deiliskipulagi er hámarks byggingarmagn 160 m2. Lóðarstærð er 400 m2 og hámarks nýtingarhlutfall 0,4. Óskað er eftir að nýtingarhlutfall verði hækkað í 0,5 og að heildarbyggingarmagn á lóð verði 196,5 m2.
Samþykkt með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 44. grein skipulagslaga málsgrein 2.
Umhverfis- og skipulagsráð heimilar að stytta tímabil grenndarkynningar ef þeir sem hagsmuna eiga að gæta, skv. 3. mgr. 44. greinar skipulagslaga hafa lýst skriflega yfir með áritun sinni á kynningargögn áður en fjórar vikur eru liðnar að þeir geri ekki athugasemdir við skipulagstillöguna eða hina leyfisskyldu framkvæmd.
Fylgigögn:
Bergvegur 11 - arkitektteikningar
Reykjanesbær leggur fram drög að uppskiptingu lóðar. https://www.reykjanesbaer.is/is/akademiureitur
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir 3-2 breytt lóðamörk skv. 3 mgr. 43. greinar skipulagslaga. Nánari skilmálar verði ákveðnir með deiliskipulagi. Guðbergur Reynisson og Jón Már Sverrisson greiða atkvæði á móti.
Fylgigögn:
Sunnubraut 35 - drög að skiptingu lóðar
Sótt er um byggingarleyfi fyrir skilti á suðaustur enda lóðar sbr. uppdrætti Verkfræðistofu Suðurnesja dags. 17. febrúar 2026.
Umhverfis- og skipulagsráð óskar eftir umsögn frá Vegagerðinni. Samkvæmt samþykkt um rafræn skilti í lögsögu Reykjanesbæjar er ekki heimilt að skiltið snúi að byggð.
Fylgigögn:
Sótt er um breytingu á LED verðskilti. Ljósbúnaður verður endurnýjaður og skiltaflötur stækkaður sbr. aðaluppdrætti Teiknistofunnar Traðar dags. 22. janúar 2026.
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir erindið með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 44. grein skipulagslaga málsgrein 2.
Fylgigögn:
Stapabraut 21 - teikningar og byggingarlýsing
Landey ehf. leggur fram erindi um skiptingu lóðarinnar Stakksbraut 9. Aðrir skilmálar gildandi deiliskipulags eru óbreyttir sbr. uppdrátt Verkfræðistofu Suðurnesja dags. mars 2026.
Umhverfis- og skipulagsráð telur að breytingin á deiliskipulagi varði ekki hagsmuni annarra en sveitafélagsins og umsækjanda og samþykkir því breytinguna skv. 43. grein skipulagslaga málsgrein 3.
Fylgigögn:
Stakksbraut 9 - deiliskipulagsbreyting
Á 53. siglingaþingi Siglingasambands Íslands sem haldið var 21. febrúar 2026 skoraði sambandið á sveitarfélög landsins að leggja aukna og markvissa áherslu á vernd og góða umgengni um strandlengju landsins, tryggja aðgengi almennings að sjónum til útivistar og jafnframt huga sérstaklega að stuðningi við íþróttafélög og starfsemi sem byggir á nýtingu sjávar og strandar.
Lagt fram.
Fylgigögn:
Áskorun til sveitastjórna - áhersla á vernd og góða umgengni um strandlengju Íslands
Þorbjörg Bergþórsdóttir sækir um lóðina Stapabraut 15.
Lóðin er ekki laus til úthlutunar. Umsókn hafnað. Unnið er að skilmálum fyrir útboð á umræddri lóð.
Kaffitár óskar eftir að lóðin Stapabraut 7 verði skilgreind í aðalskipulagi sem athafnasvæði í samtali við forsvarfólk fyrirtækisins um skipulagsskilmála lóðarinnar.
Umhverfis- og skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að taka saman spurningar í samræmi við umræður á fundinum.
Fylgigögn:
Aðalskipulag Reykjanesbæjar 2015-2035
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:42. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 17. mars 2026.