- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Sigurrós Antonsdóttir formaður, Ásta Kristín Guðmundsdóttir, Birna Ósk Óskarsdóttir, Eyjólfur Gíslason og Róbert Jóhann Guðmundsson.
Að auki sátu fundinn Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, teymisstjóri virkni- og ráðgjafarteymis og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.
Andri Fannar Freysson boðaði forföll og sat Róbert Jóhann Guðmundsson fundinn í hans stað.
Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs fór yfir framgang helstu verkefna sem sett voru fram í starfsáætlun velferðarsviðs fyrir árið 2025.
Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs kynnti helstu áherslur og markmið starfsáætlunar velferðarsviðs fyrir árið 2026.
Málinu frestað til næsta fundar.
Eydís Rós Ármannsdóttir verkefnastjóri mætti á fundinn og kynnti aðgerðaáætlun fyrir árið 2026 vegna innleiðingar á samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna hjá Reykjanesbæ.
Gunnhildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður Fjörheima og 88 hússins og Melkorka Ýr Magnúsdóttir, deildarstjóri þjónustu í frístund barna og unglinga, mættu á fundinn og fylgdu eftir fundargerð Samtakahópsins. Á fundi hópsins var unnið að endurskoðun á markmiðum og gildum hópsins.
Fylgigögn:
Fundargerð Samtakahópsins 8. janúar 2026
Grindavíkurbær og Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavík óskuðu eftir viðræðum um mögulega samvinnu um stærra umdæmi barnaverndarþjónustu, þar sem Reykjanesbær yrði leiðandi sveitarfélag. Viðræður eru hafnar.
Lagt fram til kynningar.
Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs fór yfir mælaborð sviðsins fyrir janúar 2026.
Tölulegar upplýsingar vegna fjárhagsaðstoðar og sérstaks húsnæðisstuðnings í janúar 2026 lagðar fram.
Fjárhagsaðstoð
Í janúar 2026 fengu 113 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ.
Alls voru greiddar 17.214.688 kr. í fjárhagsaðstoð til framfærslu eða að meðaltali um 152.342 kr. á hvern einstakling. Fjöldi barna á framfæri foreldra/forráðamanna á fjárhagsaðstoð var 30.
Í janúar 2025 fengu 158 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ. Alls voru greiddar 23.877.229 kr. í fjárhagsaðstoð til framfærslu eða að meðaltali 151.122 kr. á hvern einstakling. Fjöldi barna á framfæri foreldra/forráðamanna á fjárhagsaðstoð var 56.
Sérstakur húsnæðisstuðningur
Í janúar 2026 fengu 270 einstaklingar greiddan sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins. Samtals voru greiddar 6.935.890 kr.
Í janúar 2025 fengu 274 einstaklingar greiddan sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins, samtals 6.770.575 kr.
Áfrýjunarnefnd
Í janúar 2026 var haldinn einn fundur áfrýjunarnefndar. 21 mál var lagt fyrir nefndina. Átta erindi voru samþykkt, fimm synjað og átta erindum frestað til næsta fundar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:43. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 17. febrúar 2026.