- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Sigurrós Antonsdóttir formaður, Margrét Þórarinsdóttir, Bjarney Rut Jensdóttir, Eyjólfur Gíslason og Andri Fannar Freysson.
Að auki sátu fundinn Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs og Erna María Svavarsdóttir ritari.
Birna Ósk Óskarsdóttir boðaði forföll, Bjarney Rut Jensdóttir sat fyrir hana.
Ólafur Garðar Rósinkarsson, verkefnastjóri í málefnum fatlaðs fólks, mætti á fundinn og fór yfir endurnýjun umsókna og nýjar umsóknir um akstursþjónustu vegna læknisferða og nýtingu á sambærilegri þjónustu hjá HSS ásamt því að kynna stöðuna á vinnu við breytingar á reglum um ferðaþjónustu utan sveitarfélagsins.
Velferðarráð þakkar fyrir greinargóða yfirferð og áréttar að fatlað fólk sem ekki getur nýtt sér almenningssamgöngur eigi þann kost að fá akstur á höfuðborgarsvæðið í nauðsynlega læknisþjónustu sem ekki fæst í heimabyggð. Tómstundir, vinna, nám eða félagsstarf sem er veitt utan Reykjanesbæjar fellur ekki þar undir.
Ólafur Garðar Rósinkarsson, verkefnastjóri í málefnum fatlaðs fólks, mætti á fundinn og gerði grein fyrir kostnaði við einkarekin búsetuúrræði og rekstrarlega hagkvæmni þess að Reykjanesbær komi sér upp búsetuúrræði.
Velferðarráð þakkar fyrir ítarlega kynningu og vísar málinu í bæjarráð þar sem fyrirspurn um kostnað sértækra búsetuúrræða átti uppruna sinn. Ráðið telur að það þurfi að fara í þarfagreiningu, kostnaðaráætlun og framtíðarsýn fyrir þennan málaflokk og tekur undir með verkefnastjóra í málefnum fatlaðs fólks, að það er talið hagkvæmara fyrir Reykjanesbæ að reka búsetuúrræði.
Leitað er leiða til að auka þjónustu skammtímadvalarinnar í Heiðarholti til þess að draga úr miklu og langvarandi álagi aðstandenda þeirra sem nýta sér þjónustuna eða eru á biðlista eftir skammtímadvöl. Ræddar voru þrjár tillögur að umbótum; í fyrsta lagi að opna starfsemina einn fimmtudag í mánuði til viðbótar, í öðru lagi að skoða möguleika á að nýta húsnæði Suðurnesjabæjar i Skerjaborg til að létta tímabundið á starfsemi Heiðarholts á meðan sveitarfélögin vinna að þróun varanlegs úrræðis og í þriðja lagi að kanna hvort sveitarfélögin geti í auknum mæli veitt stuðning inn á heimili barna og ungmenna í stað vistunar utan heimilis.
Velferðarráð tekur vel í framkomnar tillögur um aukna þjónustu fyrir börn og ungmenni sem bæði hafa þörf og eiga lögbundinn rétt á skammtímavistun. Ráðið telur þörf á aðgerðaráætlun og leggur áherslu á framtíðarsýn í þessu máli til þess að tryggja skjólstæðingum stöðugleika. Málinu er vísað í bæjarráð til frekari umfjöllunar.
Lokaniðurstaða uppgjörs vegna uppsagnar Vinnumálastofnunar á samningi um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd hjá Reykjanesbæ liggur nú fyrir og hefur stofnunin fallist á kröfur Reykjanesbæjar í ákveðnum kostnaðarliðum eftir að hafa hafnað í fyrstu kröfu bæjarins um endurgreiðslu í öllum kostnaðarliðum.
Velferðarráð þakkar starfsfólki Reykjanesbæjar fyrir að fylgja málinu eftir en lýsir yfir vonbrigðum með afstöðu Vinnumálastofnunar.
Formaður gerði fundarhlé kl. 14:18.
Fundur aftur settur kl. 14:23.
Margrét Arnbjörg Valsdóttir, teymisstjóri öldrunar- og stuðningsþjónustu mætti á fundinn og fór yfir núverandi stöðu og lykiltölur varðandi sameiningu dagdvala á Nesvöllum, breytingar á innanhússkipulagi og fjármögnunarkosti.
Velferðarráð þakkar fyrir greinargóða kynningu og vísar erindinu til bæjarráðs.
Fundargerð 25. fundar öldungaráðs Reykjanesbæjar sem haldinn var þann 16. febrúar sl. lögð fram til kynningar.
Lagt fram. Velferðarráð tekur undir ákall um samræmingu reglna um húsnæðisstuðning í bókun öldungaráðs í máli 5. Kjaramál eldra fólks, fasteignagjöld og húsnæðisstuðningur - erindi frá FEBS.
Þörf er á formfestingu skilmála fyrir útleigu á sal í þjónustumiðstöð Nesvalla, þar sem notkun hans hefur aukist undanfarið og eðli hennar breyst. Lagðar voru fram tillögur að nýjum reglum og leiðréttri verðskrá.
Velferðarráð samþykkir tillögurnar.
Ársskýrsla og mælaborð velferðarsviðs fyrir árið 2025 lagt fram til kynningar.
Lagt fram.
Tölulegar upplýsingar vegna fjárhagsaðstoðar og sérstaks húsnæðisstuðnings í febrúar 2026 lagðar fram.
Fjárhagsaðstoð
Í febrúar 2026 fengu 111 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ.
Alls voru greiddar 16.830.215 kr. í fjárhagsaðstoð til framfærslu eða að meðaltali um 151.623 kr. á hvern einstakling. Fjöldi barna á framfæri foreldra/forráðamann á fjárhagsaðstoð voru 24.
Í febrúar 2025 fengu 129 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ. Alls voru greiddar 18.400.259 kr. í fjárhagsaðstoð til framfærslu eða að meðaltali 142.638 kr. á hvern einstakling. Fjöldi barna á framfæri foreldra/forráðamanna á fjárhagsaðstoð voru 42.
Sérstakur húsnæðisstuðningur
Í febrúar 2026 fengu 276 einstaklingar greiddan sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins. Samtals voru greiddar 7.019.097 kr.
Í febrúar 2025 fengu 270 einstaklingar greiddan sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins, samtals 6.731.938 kr.
Áfrýjunarnefnd
Í febrúar 2026 var haldinn einn fundur áfrýjunarnefndar. 14 mál voru lögð fyrir nefndina. Sjö erindi voru samþykkt og sjö erindum synjað.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:17. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 17. mars 2026.