- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Ólöf Steinunn Lárusdóttir formaður, Alma Guðnadóttir, Erna María Jensdóttir, Halla Karen Guðjónsdóttir og Hermann Borgar Jakobsson.
Að auki sátu fundinn Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs og Erna María Svavarsdóttir ritari.
Aðalheiður Hilmarsdóttir boðaði forföll og sat Erna María Jensdóttir fundinn í hennar stað.
Siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Reykjanesbæ lagðar fram til kynningar. Markmið siðareglna er að skilgreina það hátterni sem ætlast er til að kjörnir fulltrúar sýni af sér við störf sín fyrir hönd Reykjanesbæjar. Með undirritun sinni staðfesta bæjarfulltrúar og aðrir sem kjörnir eru til setu í ráðum og nefndum fyrir hönd Reykjanesbæjar að þau tileinki sér þessar siðareglur og lýsa því yfir að þeir séu reiðubúnir til að hafa þessar siðareglur að leiðarljósi við störf sín.
Skipan í áfrýjunarnefnd velferðarráðs:
Ólöf Steinunn Lárusdóttir er tilnefnd sem fulltrúi meirihluta í áfrýjunarnefnd velferðarráðs. Ólöf Steinunn Lárusdóttir lagði til Höllu Karen Guðjónsdóttur sem fulltrúa minnihluta í áfrýjunarnefnd. Aðalheiður Hilmarsdóttir gaf einnig kost á sér.
Við atkvæðagreiðslu hlaut Halla Karen Guðjónsdóttir fjögur atkvæði og Aðalheiður Hilmarsdóttir eitt atkvæði.
Ólöf Steinunn Lárusdóttir og Halla Karen Guðjónsdóttir eru því skipaðar fulltrúar velferðarráðs í áfrýjunarnefnd.
Svör við fyrirspurn Samfylkingar á fundi velferðarráðs 15. júní 2026 lögð fram.
Ársfjórðungsskýrsla um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis hjá Reykjanesbæ á fyrstu tveimur ársfjórðungum ársins 2026 lögð fram. Skýrslan veitir yfirlit um stöðu úthlutunarmála í sveitarfélaginu á viðkomandi tímabili og dregur saman helstu upplýsingar um umsóknir, biðlista og úthlutanir sem varpa ljósi á þróun málaflokksins.
Henný Úlfarsdóttir teymisstjóri barnaverndar sat fundinn undir þessum dagskrárlið í gegnum fjarfundabúnað. Hún fór yfir helstu niðurstöður Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) í frumkvæðisathugun þeirra á eftirlitsskyldum barnaverndarþjónustu sveitarfélaga vegna barna í fóstri. Í skýrslunni koma fram 13 tilmæli til barnaverndarþjónustunnar í landinu um úrbætur og óskar GEV eftir því að barnaverndarþjónustur landsins upplýsi stofnunina um hvernig brugðist verði við þeim úrbótatillögum sem þar koma fram eigi síðar en 11. janúar 2027.
Velferðarráð felur starfandi úrbótateymi um úrbætur í barnaverndarþjónustu sem skipað var í apríl síðastliðnum að fara yfir úrbótatillögur GEV og leggja fram tillögur um hvernig brugðist verði við þeim innan þeirra tímamarka sem að framan greinir.
Fylgigögn:
Frumkvæðisathugun á eftirlitsskyldum barnaverndarþjónusta með börnum í fóstri
Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs fór yfir stöðu mála varðandi samstarf Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar um skammtímavistun fatlaðra barna.
Á 1563. fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar í maí 2026 voru lagðar fram tillögur af hálfu velferðarsviðs Reykjanesbæjar, sem miðuðu að því að auka þjónustu skammtímavistunar fatlaðra barna, sem rekin er í Heiðarholti í samstarfi við Suðurnesjabæ, til að draga úr miklu og langvarandi álagi á aðstandendur þeirra barna sem bíða eftir skammtímadvöl og þeirra barna sem njóta takmarkaðrar þjónustu og eru á bið eftir viðbótarþjónustu.
Á þeim fundi var tillaga 1 sem fól í sér að bæta 25% stöðugildi við skammtímadvölina í Heiðarholti samþykkt, en sú viðbót rúmast innan fjárhagsáætlunar ársins 2026.
Tillaga 2 felur í sér að Suðurnesjabær leggur til húsnæði í Skerjaborg tímabundið með það að markmiði að hægt sé að auka skammtímadvalir í Heiðarholti og efla þjónustu við fötluð börn með miklar umönnunarþarfir. Skerjaborg yrði rekin sem hluti af skammtímadvöl Heiðarholts og yfirstjórn og skipulag starfseminnar í höndum forstöðumanns Heiðarholts. Suðurnesjabær hefur unnið áfram að þessari tillögu og ber kostnað vegna framkvæmda við húsnæðið. Gert er ráð fyrir því að rekstrarkostnaður skiptist á milli þeirra sveitarfélaga sem að rekstrinum koma á grundvelli íbúafjölda með sama hætti og í öðrum samreknum þjónustuúrræðum á Suðurnesjum. Í samræmi við það er hlutdeild Reykjanesbæjar 78.91% eða 8.325.005 kr. á árinu 2026.
Velferðarráð óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 að upphæð 8.325.005 til að geta, í samstarfi við Suðurnesjabæ og sveitarfélagið Voga, dregið úr miklu og langvarandi álagi á aðstandendur þeirra barna sem bíða eftir skammtímadvöl og þeirra barna sem njóta takmarkaðrar þjónustu og eru á bið eftir viðbótarþjónustu í Heiðarholti á meðan unnið er að framtíðarlausn varðandi skammtímadvalir í sveitarfélaginu.
Velferðarráð vísar beiðni um viðauka skv. ofangreindu til bæjarráðs Reykjanesbæjar til afgreiðslu.
Lagt fram erindi frá innviðaráðuneytinu vegna vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga, þar sem óskað er eftir svörum fyrir 21. september nk. frá sveitarfélögum sem ætlað er að draga fram heildarmynd um stöðu, áskoranir og tækifæri sveitarstjórnarstigsins. Bæjarráð fól sviðsstjórum að undirbúa drög að svari fyrir hvert ráð og leggja fyrir fyrsta fund í ágúst.
Velferðarráð felur Heru Ósk Einarsdóttur sviðsstjóra velferðarsviðs að vinna að svörum í samræmi við umræður á fundinum.
Fylgigögn:
Stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga - endurskoðun - bókun bæjarráðs
Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs kynnti mælaborð annars ársfjórðungs 2026.
Velferðarsvið er á fyrstu 6 mánuðum ársins 0,1% umfram fjárhagsáætlun 2026 eða sem svarar -1.267.492 kr. Tekjur eru 6,7% umfram áætlun, laun og launatenglar eru 0,4% yfir áætlun og annar rekstrarkostnaður 0,6% yfir áætlun.
Tölulegar upplýsingar vegna fjárhagsaðstoðar og sérstaks húsnæðisstuðnings í maí og júní 2026 lagðar fram.
Fjárhagsaðstoð í maí
Í maí 2026 fengu 84 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ. Alls voru greiddar 10.670.872 kr. í fjárhagsaðstoð til framfærslu eða að meðaltali um 127.034 kr. á hvern einstakling. Fjöldi barna á framfæri foreldra/forráðamanna á fjárhagsaðstoð var 23.
Í maí 2025 fengu 137 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ. Alls voru greiddar 19.104.848 kr. í fjárhagsaðstoð til framfærslu eða að meðaltali 139.451 kr. á hvern einstakling. Fjöldi barna á framfæri foreldra/forráðamanna á fjárhagsaðstoð var 47.
Fjárhagsaðstoð í júní
Í júní 2026 fengu 77 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ. Alls voru greiddar 12.546.180 kr. í fjárhagsaðstoð til framfærslu eða að meðaltali um 162.937 kr. á hvern einstakling. Fjöldi barna á framfæri foreldra/forráðamanna á fjárhagsaðstoð var 25.
Í júní 2025 fengu 118 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ. Alls voru greiddar 16.920.045 kr. í fjárhagsaðstoð til framfærslu eða að meðaltali 143.390 kr. á hvern einstakling. Fjöldi barna á framfæri foreldra/forráðamanna á fjárhagsaðstoð var 47.
Sérstakur húsnæðisstuðningur í maí
Í maí 2026 fengu 267 einstaklingar greiddan sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins. Samtals voru greiddar 6.683.606 kr.
Í sama mánuði 2025 fengu 284 einstaklingar greiddan sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins, samtals 6.888.378 kr.
Sérstakur húsnæðisstuðningur í júní
Í júní 2026 fengu 240 einstaklingar greiddan sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins. Samtals voru greiddar 5.646.639 kr.
Í júní 2025 fengu 277 einstaklingar greiddan sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins. Samtals voru greiddar 6.523.948 kr.
Áfrýjunarnefnd
Í maí 2026 var haldinn 1 fundur í áfrýjunarnefnd og 11 erindi lögð fyrir nefndina. 7 erindi voru samþykkt, 2 erindum synjað og 1 erindi frestað. Jafnframt var lögð fram til kynningar niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála þar sem úrskurðarnefnd staðfestir vinnulag Reykjanesbæjar um að afgreiðsla umsóknar um fjárhagsaðstoð hafi verið í takt við reglur Reykjanesbæjar og vinnsla málsins í takt við lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Skýrt mat hafi verið lagt á félagslegar aðstæður og markviss félagsleg ráðgjöf veitt í málinu.
Engir fundir voru haldnir í áfrýjunarnefnd í júní og júlí 2026.
Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs fór fyrir undirbúning vegna vinnu við fjárhagsáætlun.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:26. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 18. ágúst 2026.