457. fundur

10.09.2026 13:00

457. fundur velferðarráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Grænásbraut 910 þann 10. september 2026 kl. 13:00

Viðstaddir: Ólöf Steinunn Lárusdóttir formaður, Aðalheiður Hilmarsdóttir, Alma Guðnadóttir, Halla Karen Guðjónsdóttir og Hermann Borgar Jakobsson.

Að auki sátu fundinn Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir teymisstjóri virkni- og ráðgjafarteymis og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Velferðarráð samþykkti 5-0 að taka á dagskrá málið Ljósanótt 2026 - starfsemi barnaverndarþjónustu í athvarfi (2026040270). Fjallað er um málið undir dagskrárlið 7.

1. Farsæld barna í Reykjanesbæ (2025100186)

Hjördís Eva Þórðardóttir, verkefnastjóri farsældar barna á Suðurnesjum, mætti á fundinn og fór yfir greiningu á farsæld barna í Reykjanesbæ árin 2023 til 2026, en sú greining leggur mælikvarða Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar saman í eina farsældarvísitölu.

Velferðarráð fagnar þeirri jákvæðu þróun sem kemur fram í nýrri greiningu á farsæld barna í Reykjanesbæ á árunum 2023–2026. Heildarvísir farsældar hefur hækkað og framfarir mælast á fimm af sex sviðum. Reykjanesbær mælist þó enn undir öðrum sveitarfélögum og niðurstöðurnar sýna ólíka þróun eftir aldri og málaflokkum.

Velferðarráð vekur sérstaka athygli á að í skýrslunni koma fram vísbendingar um aukið einelti, meiri þreytu, verri líðan í skóla, minni hreyfingu og aukinn einmanaleika og andlega vanlíðan hjá börnum í ákveðnum árgöngum. Mikilvægt er að greina þessar niðurstöður nánar og tryggja að þeim verði fylgt eftir með markvissum og mælanlegum aðgerðum.

Greiningin lýsir þróun í líðan og aðstæðum barna en sýnir ekki hvernig samþætting þjónustu í þágu farsældar barna hefur gengið í framkvæmd. Hún veitir meðal annars ekki upplýsingar um aðgengi að tengiliðum og málstjórum, málafjölda, biðtíma, stuðningsteymi, stuðningsáætlanir eða reynslu barna og foreldra af þjónustuferlinu.

Velferðarráð óskar því eftir heildstæðri stöðugreiningu á innleiðingu og framkvæmd samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna í Reykjanesbæ. Jafnframt verði metið hvort núverandi staðsetning, umboð og stjórnun verkefnisins á velferðarsviði styðji nægilega við þverfaglega ábyrgð og samfellu þjónustu eða hvort breytinga sé þörf. Við það mat verði horft til fyrirkomulags og reynslu sambærilegra sveitarfélaga.

2. Erindisbréf velferðarráðs (2026060120)

Drög að erindisbréfi velferðarráðs lögð fram.

Velferðarráð felur Heru Ósk Einarsdóttur sviðsstjóra velferðarsviðs að uppfæra erindisbréf í samræmi við umræður á fundinum og leggja fram á næsta fundi ráðsins.

3. Úrbótaáætlun barnaverndarþjónustu (2026030115)

Henný Úlfarsdóttir teymisstjóri barnaverndar sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti, ásamt Heru Ósk Einarsdóttur sviðsstjóra velferðarsviðs, stöðu úrbótavinnu barnaverndarmála hjá barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar vegna vistunar barna utan heimilis.

Velferðarráð óskar eftir heildstæðri stöðugreiningu á barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar.

Í greiningunni verði meðal annars fjallað um þróun málafjölda og málþyngdar, mönnun og starfsumhverfi, stöðu fósturmála og annarra úrræða, framkvæmd lögbundinna verkefna, stöðu barna með fjölþættar þjónustuþarfir og helstu áskoranir þjónustunnar.

Jafnframt verði gerð grein fyrir þeim úrbótum sem þegar hafa verið innleiddar, hvernig árangur þeirra er metinn og hvaða frekari úrræði, mannafla eða fjárheimildir sviðið telur nauðsynlegar, meðal annars með hliðsjón af undirbúningi fjárhagsáætlunar 2027.

Velferðarráð leggur áherslu á að fá reglulega heildstæða yfirsýn yfir stöðu og þróun barnaverndarþjónustunnar til að geta sinnt hlutverki okkar sem er að sinna eftirliti og vera stefnumótandi og taka upplýstar ákvarðanir um forgangsröðun og úrbætur.

4. Fjárhagsáætlun velferðarsviðs 2027 (2026070036)

Henný Úlfarsdóttir teymisstjóri barnaverndar, Ólafur Garðar Rósinkarsson, verkefnastjóri í málefnum fatlaðs fólks og Vilborg Pétursdóttir teymisstjóri barna- og fjölskylduteymis sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.

Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs fór yfir stöðu fjárhagsáætlunarvinnu velferðarsviðs, helstu áherslur og næstu skref.

5. Fjárhagsaðstoð og sérstakur húsnæðisstuðningur - tölulegar upplýsingar (2026020248)

Tölulegar upplýsingar vegna fjárhagsaðstoðar og sérstaks húsnæðisstuðnings í júlí 2026 lagðar fram.

Fjárhagsaðstoð í júlí

Í júlí 2026 fengu 70 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ.

Alls voru greiddar 10.159.342 kr. í fjárhagsaðstoð til framfærslu eða að meðaltali um 145.133 kr. á hvern einstakling. Fjöldi barna á framfæri foreldra/forráðamanna á fjárhagsaðstoð var 27.

Í júlí 2025 fengu 118 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ. Alls voru greiddar 14.235.500 kr. í fjárhagsaðstoð til framfærslu eða að meðaltali 120.639 kr. á hvern einstakling. Fjöldi barna á framfæri foreldra/forráðamanna á fjárhagsaðstoð var 57.

Sérstakur húsnæðisstuðningur í júlí

Í júlí 2026 fengu 230 einstaklingar greiddan sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins. Samtals voru greiddar 6.875.047 kr.

Í júlí 2025 fengu 278 einstaklingar greiddan sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins. Samtals voru greiddar 6.503.867 kr.

Áfrýjunarnefnd

Enginn fundur var haldinn í áfrýjunarnefnd í júlí.

6. Fundargerð öldungaráðs Reykjanesbæjar 9. september 2026 (2026010018)

Fundargerðin lögð fram.

Fylgigögn:

Fundargerð 27. fundar öldungaráðs Reykjanesbæjar 9. september 2026

7. Ljósanótt 2026 - starfsemi barnaverndarþjónustu í athvarfi (2026040270)

Henný Úlfarsdóttir teymisstjóri barnaverndar sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti skýrslu um starfsemi barnaverndarþjónustu í athvarfi á Ljósanótt 2026.

Fylgigögn:

Skýrsla um starfsemi barnaverndarþjónustu í athvarfi á Ljósanótt 2026


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:09. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 15. september 2026.