- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum þann 21. desember 2021 að auglýsa tillögu að Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020-2035 samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr 123/2010. Samhliða er auglýst tillaga að umhverfisskýrslu samkvæmt 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 111/2021
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 og hjá Skipulagsstofnun frá og með 24. mars 2022 til 6. maí 2022.
Íbúafundir um efni tillögunnar verður haldinn á auglýsingatíma og er nánar útlistað á heimasíðu Reykjanesbæjar
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 6. maí 2022. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ eða á netfangið skipulag@reykjanesbaer.is.