Hlynur verður aðstoðarskólastjóri Myllubakkaskóla

Hlynur Jónsson hefur verið ráðinn aðstoðarskólastjóri Myllubakkaskóla.
Hlynur Jónsson hefur verið ráðinn aðstoðarskólastjóri Myllubakkaskóla.

Hlynur Jónsson hefur verið ráðinn aðstoðarskólastjóri Myllubakkaskóla. Hlynur tekur til starfa 1. ágúst nk. en hann leysti af stöðu aðstoðarskólastjóra síðastliðið skólaár.  Hlynur hefur starfað við Myllubakkaskóla frá árinu 2011 sem deildarstjóri og kennari, ásamt því að hafa verið umsjónarmaður sérúrræðis og námsvers.

Hlynur lauk námi til B.Sc gráðu í sálfræði við Háskóla Íslands árið 2009, diplómu í kennslufræði við Háskólann á Akureyri 2011 og M.A. í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst 2015.