Nýi skólinn heitir Stapaskóli

Tinna Rut naut aðstoðar föður síns Sigvalda Lárussonar og Hera Björg frá Kjartani Má Kjartanssyni b…
Tinna Rut naut aðstoðar föður síns Sigvalda Lárussonar og Hera Björg frá Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra.

Tinna Rut Sigvaldadóttir leikskólanemandi á Holti og Hera Björg Árnadóttir nemandi í Akurskóla Dalsbraut tóku í morgun skóflustungu að nýjum skóla við Dalsbraut í Innri Njarðvíkurhverfi. Skólinn mun heita Stapaskóli, en það varð niðurstaða bæjarráðs og fræðsluráðs eftir tillögum sem bárust í nafnasamkeppni sem fræðsluráð efndi til.

Niðurstaða undirbúningshóps sem skilaði skýrslu í júní árið 2016 var að byggður yrði heildstæður skóli sem yrði allt í senn, leik- og grunnskóli, frístunda- og tónlistarskóli, bókasafn, menningar- og félagsmiðstöð hverfisins. Með tímanum verður svo íþróttahús og sundlaug byggð við skólann. Að undangengnu útboði var ákveðið að taka tilboði Arkís arkitekta í verkið.

Skólinn mun heita Stapaskóli en nafnið var eitt af þeim 50 tilögum sem bárust frá 186 einstaklingum sem tóku þátt í nafnasamkeppni fræðsluráðs í október. Alls 28 einstaklingar sendu inn tillögu að nafninu Stapaskóli og flestir rökstuddu nafngiftina með því að skólinn væri í nálægð eða á Stapa/Vogastapa, auk þess sem nafnið væri stutt og þjált. Enginn annar skóli á Íslandi ber þetta nafn.

Nú þegar fyrsta skóflustunga hefur verið tekin mun jarðvegsverktakinn Karína ehf. hefjast handa við sína vinnu. Áætlað er að fyrsti áfangi skólans verði tekinn í notkun haustið 2019. Á svæðinu er nú starfræktur skóli í bráðabirgðahúsnæði sem útibú frá Akurskóla.

Sú mikla uppbygging sem nú er í skólum í Reykjanesbæ tengist þeirri miklu íbúafjölgun sem verið hefur að undanförnu. Íbúum hefur verið að fjölga allt upp í 8% milli ára sem kallar á mikla innviðauppbyggingu. Auk nýs skóla í Innri Njarðvík er unnið að stækkun Háaleitisskóla á Ásbrú og næsta sumar verður leikskólinn Háaleiti einnig fluttur í nýtt og stærra húsnæði til að mæta vaxandi þörf á Ásbrú.

Síðasti skóli sem vígður var í Reykjanesbæ var Akurskóli undir lok árs 2005. Háaleitisskóli byggðist svo upp eftir brotthvarf hersins árið 2006 í skólahúsnæði á gamla varnarsvæðinu og var fyrst um sinn rekinn sem útibú frá Njarðvíkurskóla. Sá leikskóli sem vígður var síðast var Vesturberg, á haustmánuðum 2008.

Hér má skoða teikningar af Stapaskóla.