Einstefna sett á akstursleiðir við Reykjaneshöll og Akademíu

Örvarnar sýna einstefnuleiðirnar
Örvarnar sýna einstefnuleiðirnar

Föstudaginn 15 mars kl. 10 verður umferðarskipulagi við Reykjaneshöll og Akademíu/Fimleikahöll breytt með þeim hætti sem sýnt er á meðfylgjandi uppdrætti. Breytingarnar fela í sér að einstefna er sett á akstursleiðir. Einstefnuleiðir verða vel merktar..