Hreinsun á lóðum í Helguvík

Umhverfissvið Reykjanesbæjar skorar á eigendur lausamuna á lóðum bæjarins í Helguvík að fjarlægja þ…
Umhverfissvið Reykjanesbæjar skorar á eigendur lausamuna á lóðum bæjarins í Helguvík að fjarlægja þá fyrir 1. september. Umræddar lóðir eru merktar með rauðri þekju á myndinni.

Umhverfissvið Reykjanesbæjar skorar á eigendur lausamuna á lóðum bæjarins í Helguvík (merktar með rauðri þekju) að fjarlægja þá fyrir 1. september næstkomandi. Eftir þau tímamörk áskilur bærinn sér þann rétt að fjarlægja ósótta lausamuni og koma þeim í förgun.

Eigendum annarra lóða (merktar með gulri þekju) er bent á skyldur sínar um að halda lóðum sínum hreinum og snyrtilegum sb. reglug. nr. 941/2002 18. gr. 1. mgr.:

Hreinlæti og þrif mannvirkja.
18. gr.

Eigandi eða umráðamaður húss eða mannvirkis skal halda eigninni hreinni og snyrtilegri ásamt tilheyrandi lóð og girðingum, þannig að ekki valdi öðrum ónæði.

Ekki má haga hreinsun húsa, húshluta og húsmuna þannig að leitt geti til óþrifnaðar eða ónæðis fyrir aðra.