Opinn íbúafundur um deiliskipulagstillögur

Deiliskipulagstillaga Víkurbraut 21-23. JeES arkitektar.
Deiliskipulagstillaga Víkurbraut 21-23. JeES arkitektar.

Á fundinum verður farið yfir deiliskipulagstillögur Víkurbraut 21-23 og Framnesveg 11. Tillögurnar eru unnar af JeES arkitektum. Mannvirkjagerðin verður í höndum Húsanes Verktaka ehf. 

Fundurinn hefst kl. 18:00 miðvikudaginn 3. janúar. Frummælandi er Jón Stefán Einarsson arkitekt og fundarstjóri Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi.