Óskað eftir tilboðum í breytingu á húsnæðinu að Skógarbraut 932 í leikskóla

Gefendur og þiggjendur húsnæðisins mynda þakkarkeðju. Ljósmynd: Víkurfréttir
Gefendur og þiggjendur húsnæðisins mynda þakkarkeðju. Ljósmynd: Víkurfréttir

Ríkiskaup, fyrir hönd Reykjanesbæjar, kt. 470794-2169, óska eftir tilboðum í að breyta húsnæðinu að Skógarbraut 932 í leikskóla.

Verkið er fólgið í breytingu á núverandi húsi í leikskóla. Núverandi innra skipulagi breytt, veggir, loftaklæðningar, loftræstikerfi, hreinlætistæki rifið og fargað. Innra skipulagi breytt, lagnir endurnýjaðar, ný loft, gólfefni, málun inni, raflagnir og ljós endurnýjað og málun, og endurbætur utanhúss.

Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum á vef Ríkiskaupa.