Smiðjuvellir lokaðir vegna framkvæmda

Rauða strikið á myndinni sýnir svæðið sem er lokað fyrir umferð.
Rauða strikið á myndinni sýnir svæðið sem er lokað fyrir umferð.

Búið er að loka Smiðjuvöllum milli Þjóðbrautar og  Iðavalla  þar sem unnið er við lagfæringu götunnar. Vonast er til að viðgerð klárist í dag og á morgun og að hægt verði að opna fyrir umferð föstudaginn 23. febrúar. Vegurinn verður malarvegur að viðgerð lokinni og eru vegfarendur beðnir um að aka varlega um götuna.

Vegurinn er bráðabirgðavegur þar sem íbúabyggð hefur verið skipulögð á svæðinu. Því verður þessi kafli ekki malbikaður. Nýr vegur ofan Smiðjuvalla verður opnaður í sumar.