Tilboð óskast vegna sölu fasteignar á lóð

Íþróttavallarhús Njarðvíkur við Vallarbraut 14. Skjáskot af ja.is
Íþróttavallarhús Njarðvíkur við Vallarbraut 14. Skjáskot af ja.is

Reykjanesbær auglýsir hér með eftir tilboðum vegna sölu fasteignar á lóð að Vallarbraut 14, íþróttavallarhús Njarðvíkur. Byggingin er timburhús á steyptri gólfplötu,  stærð er 177.6 m². Um er að ræða sölu á húsi á lóðinni til flutnings. Verkinu skal vera lokið fyrir 31. desember 2019.

Nánari upplýsingar og ítarlegri gögn vegna sölunnar fást með því að senda tölvupóst á  tryggvi.th.bragason@reykjanesbaer.is merkt Vallarbraut 14.

Tilboðum skal skilað í tölvupósti á kristinn.th.jakobsson@reykjanesbaer.is merkt Vallarbraut 14 eigi síðar en kl. 12:00 föstudaginn 29. nóvember 2019. Opnun tilboða fer fram kl. 13:00 sama dag. Aðilar geta verið viðstaddir opnun sé þess óskað.