Tillaga að breytingum á Svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024

Breytingartillagan felur í sér breytta afmörkun á vatnsverndarsvæðis í Reykjanesbæ, uppfærð flugbra…
Breytingartillagan felur í sér breytta afmörkun á vatnsverndarsvæðis í Reykjanesbæ, uppfærð flugbrautarkerfi Keflavíkurflugvallar og uppfært vatnsverndarkort fyrir Suðurnesin.

Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja auglýsir tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024 ásamt umhverfisskýrslu sbr. 27. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.

Breytingartillagan felur í sér breytta afmörkun á vatnsverndarsvæðis í Reykjanesbæ, uppfærð flugbrautarkerfi Keflavíkurflugvallar og uppfært vatnsverndarkort fyrir Suðurnesin.

Breytingartillagan ásamt umhverfisskýrslu og vatnsverndarkorti fyrir Suðurnesin verður aðgengileg á vef Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) frá 29. júlí til 16. september 2019.

Skoða svæðisskipulagið á vef SSS

Breytingartillagan verður til sýnis frá 29. júlí nk. til 16. september 2019 á skrifstofu sambandsins, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ og á skrifstofum Reykjanesbæjar, Grindavíkurbæjar, Sveitarfélagsins Voga og Suðurnesjabæjar. Jafnframt verður breytingartillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun Borgartúni 7b í Reykjavík, á kynningartímanum.

Skriflegar ábendingar og athugasemdir við tillöguna skal senda til skrifstofu SSS, eða á netfangið sss@sss.is. Þær þurfa að berast fyrir 16. september 2019.

Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja
Ólafur Þór Ólafsson, formaður

Skipulagsreglur 2019

Svæðisskipulag - breyting

Uppdráttur I-IV 2018

Vatnsverndarkort