Umferð frá flugstöð leidd í gegnum Reykjanebæ

Vinnustaðamerking sem sýnir hvar umferð verður leidd í gegnum bæinn.
Vinnustaðamerking sem sýnir hvar umferð verður leidd í gegnum bæinn.

Verktaki mun leggja malbik á hringtorg við Aðalgötu fimmtudaginn 14. Umferð frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar verður þá beint um hjáleið niður Garðveg og Heiðarberg inn á Hringbraut. Þaðan geta vegfarendur komist á ný inn á Reykjanesbraut um Grænásbraut eða Fitjar.

Umferð um Reykjanesbraut verður á vestari helmingi hringtorgsins framan af degi, en færist svo á þann eystri. Þá opnast jafnframt fyrir umferð um Aðalgötu. Hjáleiðir eru sýndar á meðfylgjandi myndum. Reynt verður eftir fremsta megni að stytta verktímann.

Engin breyting verður við Þjóðbraut að svo stöddu. 

Merkingar sem sýna lokun Aðalgötu og umferð framhjá gatnamótum Aðalgötu og Reykjanesbrautar