Umhverfisvaktin 18. maí - 31. maí

Hér getur þú fylgst með framvindu framkvæmda í bænum og fengið nýjustu upplýsingar. Um lifandi gögn er að ræða sem breytast reglulega og gefa góða mynd af því sem er í gangi í bænum hverju sinni.

 

Fornleifarannsókn á Narfakotstúni

Frá 26. maí 2026 til 3. júní 2026 fer fram fornleikarannsókn á Nafrakotstúni. Þar er í gildi deiliskipulag frá árinu 2008, sem sjá má á kortasjá Reykjanesbæjar. Gildandi deiliskipulag byggir ekki á fullnægjandi grunni, með tilliti til fornleifarannsókna. Landeigandi hyggst uppfæra deiliskipulag fyrir svæðið, hluti af þeirri vinnu er að verða við ítarlegum kröfum Minjastofnunar um rannsókn á forn- og mannvistarleyfum á svæðinu.

Á meðfylgjandi mynd má sjá hvar Minjastofnun hefur gert kröfu um gröft könnunarskurða sem fornleifafræðingar munu nýta til skoðunar og rannsókna.

 

Veituframkvæmdir við Skólaveg

 

Vegna veituframkvæmda á vegum Fráveitu Reykjanesbæjar og HS Veitna verður Skólavegur og gatnamót Skólavegar og Hringbrautar lokað á tímabilinu 11. júní til 22. ágúst 2026.

Við þökkum fyrir skilninginn og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

 

Umhverfisvaktin

Hér má lesa fréttir af framkvæmdum í Reykjanesbæ.