Tímabundin lokun bílastæða við Hafnargötu 22-24.
Vegna framkvæmda verður tímabundna lokun á nokkrum bílastæðum og akstursleið samanber mynd. Áætluð verklok eru eftir fyrstu vikuna í Oktober.
Þökkum fyrir skilninginn.

Malbikun á Borgarvegi
Loka þarf götunni á meðan að framkvæmdir eru í gangi en opið verður inn í botnlangann.
Undirbúningur hefst í dag
Í dag, miðvikudaginn 23. september 2026, hefst undirbúningur fyrir malbikun á Borgarvegi. Malbikunin sjálf fer fram á föstudaginn, 25. september 2026.
Hvað þurfa íbúar að gera?
Íbúar við Borgarveg eru vinsamlegast beðnir um að fjarlægja bíla af götunni og úr innkeyrslum þar sem ekki verður aðgengt eftir daginn í dag. Gatan verður lokuð fyrir umferð meðan á framkvæmdum stendur, og er íbúum bent á að gera ráð fyrir því við skipulagningu dagsins.
Framkvæmdin
Verktakinn Rekan annast verkið fyrir hönd Reykjanesbæjar. Bæjaryfirvöld þakka íbúum fyrir skilning og biðja þá um að sýna starfsfólki og tækjum á framkvæmdasvæðinu tillitssemi meðan á verkinu stendur.