120 nemendur úr Reykjanesbæ í hópi 10% bestu á landinu

Yfir 120 nemendur úr Reykjanesbæ eru á meðal þeirra 10% nemenda á landinu sem hlutu hæstu einkunnir á samræmdum prófum á haustönn 2011. Prófin eru framkvæmd með sama hætti um allt land og fara fram í íslensku, stærðfræði og ensku. Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ veitti hópnum viðurkenningarskjöl í tilefni þessa frábæra árangurs í Víkingaheimum í gær að viðstöddum foreldrum og forsvarsmönnum grunnskólanna. Það voru nemendur í 4., 7. og 10. bekk grunnskólanna í Reykjanesbæ sem þreyttu samræmd próf sl. haust, alls 530 nemendur.


Í ávarpi Árna Sigfússonar bæjarstjóra lagði hann áherslu á mikilvægi þess að viðurkenna hinn frábæra árangur sem þessir nemendur væru að sýna og væru þannig umhverfi sínu og samfélaginu til sóma og mikil hvatning fyrir aðra nemendur. Árni gat þess einnig að aðgerðir til að mæla árangur í skólastarfi væru langt frá því bundnar við mælingar á samræmdum prófum í íslensku, stærðfræði eða ensku. Margir nemendur hefðu t.d. sýnt frábæran árangur á tónlistarsviðinu, og mikið af ungu tónlistarfólki væri nú að láta að sér kveða í þjóðlífinu eftir að grunnur var lagður í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Þá væru miklir afreksmenn á íþróttasviðinu úr grunnskólum Reykjanesbæjar sem m.a. kæmi fram í frábærum árangri yngri árganga í Keflavík og UMFN og ekki síður í Hreystikeppni grunnskóla, þar sem grunnskólar úr Reykjanesbæ væru í fremstu röð. Þá mætti minna á að margir nemendur væru frábærir verkmenn og þannig mætti áfram telja. Með samræmdu prófunum er þó skýr mæling sem væri með sama hætti um allt land og því auðveldur mælikvarði.