- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Samstarfsverkefni Reykjanesbæjar, atNorth og Crusoe um aukna skógrækt á Suðurnesjum hófst formlega á Njarðvíkurheiði í gær. Samstarfið felur í sér gróðursetningu 65.000 trjáplantna á næstu fimm árum, eða um 13.000 plantna á ári.
atNorth og Crusoe fjármagna kaup á plöntum og áburði vegna verkefnisins en Reykjanesbær hefur yfirumsjón með verkefninu og sér um gróðursetningu, áburðargjöf og umhirðu svæðisins.
Fyrstu plönturnar voru settar niður í gær á skipulögðu skógræktarsvæði á Njarðvíkurheiði. Alls voru gróðursett á annað þúsund tré, aðallega fjallafura, bergfura og stafafura.
Fulltrúar Reykjanesbæjar, atNorth og Crusoe hófu daginn á því að gróðursetja saman á svæðinu. Í kjölfarið bættust við nemendur úr Akurskóla og Stapaskóla ásamt leikskólabörnum úr Innri-Njarðvík sem tóku virkan þátt í gróðursetningunni. Veðrið lék við þátttakendur og skapaðist góð stemning þegar börn og fullorðnir tóku höndum saman við að koma nýjum skógi af stað.
Starfsmenn á vegum Skógræktarfélags Íslands aðstoðuðu við gróðursetninguna og munu næstu daga halda áfram vinnu á svæðinu þar til þeim 13.000 plöntum verið komið í jörð.
Verkefnið er stórt skref í áframhaldandi uppbyggingu skógræktar á Suðurnesjum. Að fimm árum liðnum er gert ráð fyrir að 65.000 nýjar trjáplöntur hafi verið gróðursettar á Njarðvíkurheiði með samstarfi Reykjanesbæjar, atNorth og Crusoe.

Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)