Á fjórða tug kvartana hafa borist Umhverfisstofnun vegna mengunar frá USi

Horft yfir verksmiðju United silicon í Helguvík.
Horft yfir verksmiðju United silicon í Helguvík.

Fulltrúar frá Umhverfisstofnun munu mæta á fund bæjarráðs 1. desember n.k. vegna ábendinga og kvartana sem hafa borist frá íbúum Reykjanesbæjar vegna lykt- og rykmengunar frá kísilveri United Silicon í Helguvík. Bæjarráð ályktaði um málið á bæjarráðsfundi í gær og lýsti yfir áhyggjum sínum af menguninni. Bæjarráð fól bæjarstjóra að óska eftir skýrslu frá Umhverfisstofnun og fulltrúa frá henni á næsta bæjarráðsfundi.

Vel á fjórða tug ábendinga og kvartana hafa borist Umhverfisstofnun undanfarna daga vegna lykt- og rykmengunar frá kíliverinu. Þá hefur Umhverfisstofnun upplýsingar um að a.m.k. einn einstaklingur hafi leitað til læknis vegna einkenna sem kunna að tengjast loftmengun á svæðinu að sögn Sigrúnar Ágústsdóttur sviðstjóra hjá stofnuninni.

Fulltrúar frá Umhverfisstofnun munu mæta á fund bæjarráðs í næstu viku þar sem leitast verður við að svara þeim spurningum og vangaveltum sem munu berast þeim frá bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ, að sögn Sigrúnar. Hún hvetur íbúa bæjarins einnig til að láta í sér heyra svo hægt sé að fá góða yfirsýn yfir málið. Netfang Umhverfisstofnunar er ust@ust.is en einnig má senda ábendingar á vef stofnunarinnar, https://ust.is/hafa-samband/

United Silicon birti yfirlýsingu í Víkurfréttum í gær þar sem leitast er við að svara kvörtunum íbúa sem hafa verið áberandi á samfélagsmiðlum undanfarna daga. Þar kemur fram að brenna hafi þurft mikið magn af timbri til að baka rafskaut brennsluofnsins og að hvorki reykurinn, sem kom vegna þess að reykhreinsivirki verksmiðjunnar var ekki notað, né lyktin sé skaðlegri en frá brennu á gamlárskvöld. Þetta hafi verið áður en verksmiðjan fór í gang og ætti því að vera úr sögunni nú þegar framleiðsla sé hafin.