Aðlögunaráætlun Reykjanesbæjar 2017 - 2022

Horft yfir Reykjanesbæ frá Innri Njarðvík.
Horft yfir Reykjanesbæ frá Innri Njarðvík.

Aðlögunaráætlun Reykjanesbæjar til ársins 2022 verður lögð fram til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar í dag þriðjudaginn 21. mars 2017.  Samkvæmt aðlögunaráætlun mun skuldaviðmið samstæðu Reykjanesbæjar verða 149% í lok tímabilsins sem aðlögunaráætlunin tekur til eða í árslok 2022.

Aðlögunaráætlunin er, til viðbótar þeim forsendum sem er að finna í áætluninni sjálfri, bundin þeirri forsendu að samkomulag um endurskipulagningu efnahags og endurfjármögnun skulda Reykjanesbæjar og samstæðu takist en viðræður við kröfuhafa standa enn yfir.

Nánari upplýsingar veitir Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri.

Reykjanesbær. Aðlögunaráætlun til ársins 2022.

Aðlögunaráætlun Reykjanesbær 2017 til 2022. Fyrri umræða bæjarstjórn 21. mars 2017.