Aðventugarðurinn opnar með Aðventugöngu

Aðventugarðurinn opnar með Aðventugöngu

Nú er aðventan á næsta leiti, tími eftirvæntingar og jólaljósa sem lýsa upp skammdegið og setja allt umhverfið í hátíðlegan búning. Þá opnum við líka fallega Aðventugarðinn okkar þar sem fjölskyldur geta komið saman og notið á aðventunni.

Aðventuganga og tendrun ljósanna á jólatré Aðventugarðsins

Við hefjum leika með Aðventugöngu föstudaginn 1. desember kl. 17 þar sem gengið verður úr Aðventugarðinum í fylgd jólasveina og Grýlu gömlu yfir í Skessuhelli þar sem Fjóla tröllastelpa tekur á móti mannskapnum og sungin verða jólalög. Síðan verður gengið til baka í Aðventugarðinn þar sem ljósin verða tendruð á jólatré Aðventugarðsins og öllum boðið upp á heitt kakó og piparkökur.

Aðventugarðurinn opinn um helgar

Á laugardag opnar svo Aðventugarðurinn með frábærri dagskrá og sölu á ýmsum varningi í jólakofunum. Meðal þess sem verður á dagskrá helgarinnar er ratleikur, jólaball með jólasveinum Aðventugarðsins, heimsókn frá risastórum ísbirni, snjóprinsessunni og fjallamanninum, Jóliver frá Sirkus Íslands og Lalla töframanni. Þá leikur Kósýbandið ljúfa tóna auk þess sem atriði frá Leikfélagi Keflavíkur úr Jólasögu í Aðventugarðinum verður flutt. Alla dagskrá og nákvæmari tímasetningar er að finna á vefnum visitreykjanesbaer.is. Aðventugarðurinn verður opinn allar helgar í desember frá kl. 14-17 og á Þorláksmessu frá kl. 18-21.

Aðventusvellið í fullum gangi

Aðventusvellið, með nýbrýndum og fínum skautum, er komið á syngjandi siglingu og þar gefst fjölskyldum einstakt tækifæri til að upplifa saman gleðilegar stundir með hressandi útivist og hreyfingu. Opið er á svellinu föstudaga til sunnudags auk þess sem tækifæri er til þess að halda afmælisveislur á svellinu og bóka ýmsa hópeflis- og viðburðapakka. Hægt er að kaupa áskrift að svellinu og nýta má frístundastyrk Reykjanesbæjar til þess. Allar nánari upplýsingar um opnunartíma og bókanir eru á adventusvellid.is

Jólahús Reykjanesbæjar

Fljótlega verður kynntur léttur leikur í samstarfi við Húsasmiðjuna í Reykjanesbæ þar sem fólk getur sent inn tillögur að því húsi sem því finnst að ætti að hljóta nafnbótina Jólahús Reykjanesbæjar. Eru allir hvattir til að taka þátt í þessu skemmtilega uppátæki sem er fyrst og fremst til gamans gert en mikið er af fallega skreyttum húsum og götum í bænum og um að gera að taka rúnt og skoða skreytingarnar.

Það er því um að gera að njóta alls þess sem boðið er upp á í bænum á aðventunni en alla jóladagskrá er að finna á vefsíðunni visitreykjanesbaer.is