Af stað á Reykjanesið

AF STAÐ á Reykjanesið - Skipsstígur 4. ferð, sunnudaginn 22. maí 2011.  Mæting kl. 13:00 á við Bláa lónið, bílastæði. Sameinast verður í bíla og ekið að upphafsstað göngu í Njarðvík. 

Skipsstígur er forn þjóðleið milli Grindavíkur og Njarðvíkur. Gengið verður hjá Sjónarhól um Rauðamel að Bláa lóninu. Svæðið býr yfir kynngimagnaðri náttúru og sögum sem Sigrún Jónsdóttir Franklín mun miðla á leiðinni. Áætlað er að gangan taki ca. 4 - 5 klst. með fræðslustoppum, um 12 km. Gott er að vera með nesti og í góðum skóm.

Allir eru á eigin ábyrgð. Þátttökugjald kr. 1.000. Frítt fyrir börn.

Gangan er fjórða ferð af fimm menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar verða með leiðsögn á sunnudögum í maí. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 3 - 5 gönguleiðir verður dregið úr seðlum og einhverjir þrír heppnir fá vinninga. Dregið verður í síðustu göngu. Þátttakendur eru beðnir um að muna efti að taka þátttökuseðla með í ferðir. Allir eru velkomnir.

Nánari upplýsingar um ferðina veitir Sigrún Jónsdóttir Franklín
www.sjfmenningarmidlun.is
sjf@internet.is/gsm. 6918828