Afhending hvatningarverðlauna fræðsluráðs

Á myndinni eru  Brynja Ýr Júlíusdóttir, Kristín Þóra Möller og Valgerður Björk Pálsdóttir formaður …
Á myndinni eru Brynja Ýr Júlíusdóttir, Kristín Þóra Möller og Valgerður Björk Pálsdóttir formaður fræðsluráðs sem afhenti verðlaunin.

Hvatningarverðlaun fræðsluráðs Reykjanesbæjar voru afhent í Bíósal Duus við hátíðlega athöfn þann 9. júní síðastliðinn. Alls bárust 25 ábendingar að þessu sinni og voru verkefnin fjölbreytt að vanda.

Valgerður Björk Pálsdóttir formaður fræðsluráðs afhenti Hvatningarverðlaunin og lagði hún áherslu á nemendalýðræði í máli sínu. Mikilvægi þess að spyrja nemendur álits og gefa þeim frelsi og val í námi sínu.

Kristín Þóra Möller, Esther Elín Þórðardóttir og Brynja Ýr Júlíusdóttir sem eru kennarar í Akurskóla hlutu Hvatningarverðlaunin að þessu sinni fyrir Instagram verkefni úr Laxdælu.

Í verkefninu er Laxdæla túlkuð af nemendum með instagramfærslum og myndum. Nemendur bregða sér í hlutverk aðalpersóna í Laxdælu og skrifa söguna með instagramfærslum. Hugmyndaflugið fær að ráða för sem gerir það að verkum að nemendur eru stoltir og áhugasamir um verkefnið. Nálgunin mætir nemendum á þeirra áhugasviði og þeirra miðli. Verkefnið fær nemendur til að rýna betur í söguna og setja sig í spor persónanna. Instagramreikningar nemenda bera heiti eins og: official.kjartan.olafsson, bolli_thorleiksson og gudrun.osvifursdottir.

Tvö önnur verkefni hlutu einnig viðurkenningu en það voru verkefnin Söngleikurinn Mamma Mía sem settur var upp með nemendum í 8.-.10. bekk í Heiðarskóla og Daníella Holm Gísladóttir, Guðný Kristjánsdóttir, Esther Níelsdóttir og Hjálmar Benónýsson stóðu að og einnig Seesaw verkefni í Stapaskóla en þar finnur kennarinn Rebekka Rós Reynisdóttir fjölbreyttar leiðir til að mæta mismunandi þörfum nemenda sinna.

Á undan afhendingu Hvatningarverðlaunanna voru undirritaðir samningar vegna verkefna sem hljóta styrk úr Nýsköpunar- og þróunarsjóði fræðslusviðs í ár. Um er að ræða 21 verkefni og er þetta í annað sinn sem úthlutað er úr Nýsköpunar- og þróunarsjóðnum.