- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Frístundaheimilið Akurskjól við Akurskóla hefur undanfarin tvö ár staðið fyrir styrktarviðburði til stuðnings Barnaspítala Hringsins sem ber heitið Sumarmarkaður Akurskjóls. Verkefnið hefur notið góðrar þátttöku barna, foreldra og nærsamfélagsins og hefur á þessum tveimur árum safnað rúmlega 400 þúsund krónum til spítalans.
Sumarmarkaðurinn er að stórum hluta skipulagður af börnunum sjálfum. Yfir skólaárið vinna þau fjölbreytt listaverk og handgerða muni sem síðan eru seldir á markaðnum. Lögð er rík áhersla á að börnin hafi raunveruleg áhrif á verkefnið og taki þátt í ákvarðanatöku frá upphafi til enda. Þau velja meðal annars hvaða málefni skal styrkja og koma með hugmyndir að dagskrá og framkvæmd markaðarins.
Á markaðnum hafa meðal annars verið í boði popp, drykkir og happdrætti að frumkvæði barnanna sjálfra. Fjölmörg fyrirtæki í Reykjanesbæ hafa lagt verkefninu lið með því að gefa vinninga í happdrættið og sýnt þannig stuðning við framtakið.
Foreldrar, forsjáraðilar og aðrir gestir velja sjálfir hversu mikið þeir greiða fyrir listaverk barnanna. Markmiðið hefur frá upphafi verið að halda verðlagningu hóflegri svo allar fjölskyldur geti tekið þátt, óháð efnahag.
Þótt fjárhagslegur stuðningur við Barnaspítala Hringsins sé mikilvægur þáttur verkefnisins snýst Sumarmarkaður Akurskjóls ekki síður um að kenna börnum mikilvægi samkenndar, samfélagsábyrgðar og þess að vinna saman að góðu málefni.
„Við erum afar stolt af börnunum okkar sem hafa sýnt frumkvæði, sköpunargleði og metnað í þessu verkefni. Við viljum jafnframt færa öllum þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem hafa stutt við bakið á okkur innilegar þakkir,“ segir Björgvin Margeir Hauksson, forstöðumaður Akurskjóls.
Reykjanesbær er afar stoltur af verkefnum sem þessum þar sem börn fá tækifæri til að láta gott af sér leiða, taka ábyrgð og hafa raunveruleg áhrif á sitt samfélag. Frábært Akurskóli!
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)