Álagningarskrá 2016 aðgengileg í Ráðhúsi

Álagningarskrá Reykjanesbæjar 2016.
Álagningarskrá Reykjanesbæjar 2016.

Álagningarskrá 2016 fyrir íbúa Reykjanesbæjar er nú aðgengileg í Ráðhúsi. Þeir sem óska eftir að fá að skoða skrána þurfa að hafa samband við þjónustufulltrúa í þjónustuveri. Opnunartíminn er virka daga kl. 9:00 til 16:00. Álagningarskráin verður aðgengileg frá 30. júní til 14. júlí.

Álagn­ing­ar­skráin 2016 var opnuð á vef rík­is­skatt­stjóra í gær og getur hver og einn skoðað sinn álagningarseðil á innri vef.

Hækkun Reykjanesbæjar á álagningarprósentu útsvars kemur í fyrsta sinn til innheimtu nú.