Allir eru velkomnir á Virkniþing

Virkniþing er hátíð á vegum Velferðarnets Suðurnesja þar sem framboð á fjölbreyttri afþreyingu, virkniúrræðum og iðju fyrir fullorðið fólk á Suðurnesjum er kynnt með skemmtilegum hætti.

Yfir 30 félagasamtök, starfsstöðvar ríkis og sveitarfélaga, einkafyrirtæki og aðrir munu kynna sína starfsemi.

Hljómahöllin verður opin fyrir gestum og gangandi sem mun gefast tækifæri til þess að ganga um salinn og kynna sér frábært framboð á starfi fyrir fullorðna á Suðurnesjum.

Kaffiveitingar verða í boði, skemmtiatriði á sviði inn á milli yfir daginn og létt stemning í salnum.

Virkniþingsstjóri verður Hallbjörn Valger Rúnarsson, þroskaþjálfi og deildarstjóri á atvinnu- og virknisviði Sólheima, oft þekktur sem Halli Valli, Sandgerðingur og söngvari pönksveitarinnar Ælu.

Virkniþingið er öllum opið og eru íbúar á Suðurnesjum hvattir til að kíkja við.