- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Almenn ánægja er meðal foreldra í Reykjanesbæ með nám og kennslu barna í grunnskólum bæjarins. Þetta kemur fram í Skólavoginni, mælitæki þar sem safnað er saman upplýsingum um grunnskólastarf. Reykjanesbær var númer 4. Á þessum mælikvarða af þeim 27 sveitarfélögum sem tóku þátt í foreldrakönnuninni í ár. Gylfi Jón Gylfason fræðslustjóri Reykjanesbæjar segir niðurstöðuna gleðiefni og segir að margir samverkandi í þættir í skólasamfélaginu þurfi að fara saman til að fá svona niðurstöðu og nefnir sérstaklega gæðakennara, markvisst foreldrasamstarf, góða stjórnendur, metnaðarfulla nemendur og skýra stefnu.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)