Almyrkvi í Reykjanesbæ

Miðvikudaginn 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sýnilegur frá Íslandi. Þetta er afar sjaldgæfur atburður og sá fyrsti sem sést frá Íslandi síðan árið 1954. Á meðan almyrkvinn stendur yfir fer tunglið beint fyrir sólina og skyggir hana alveg um stutta stund. Þá verður skammvinnt rökkur um miðjan dag og aðeins kóróna sólarinnar verður sýnileg umhverfis tunglið.

Sólmyrkvagleraugu

Til að sem flestir geti notið þessa einstaka náttúruviðburðar á öruggan hátt hefur Reykjanesbær gefið öllum starfsmönnum sveitarfélagsins og öllum grunnskólabörnum í Reykjanesbæ sólmyrkvagleraugu.

Mikilvægt er að nota aðeins sólmyrkvagleraugu sem uppfylla ISO 12312-2 öryggisstaðalinn og eru CE-vottuð þegar horft er á sólmyrkvann. Ef þú átt ekki slík gleraugu eru þau til sölu á Bókasöfnum Reykjanesbæjar, bæði í Aðalsafni og Stapasafni.

Tímasetning sólmyrkva í Reykjanesbæ

Deildarmyrkvi hefst: 16:47:11
Almyrkvi hefst: 17:48:04
Almyrkvi í hámarki: 17:48:54
Almyrkva lýkur: 17:49:44
Deildarmyrkva lýkur: 18:47:52

Athugið: Nákvæmar tímasetningar og lengd fara eftir staðsetningu. 

Myrkvastund - viðburðir í Reykjanesbæ

Almyrkvaviðburðurinn Myrkvastund verður haldinn á fjórum stöðum um bæinn. Heyrst hefur að þessi magnaði atburður sé ennþá magnaðari í góðri samveru. Á hverjum stað verður DJ sem sér um að halda uppi stemningunni, íþróttafélögin sjá um veitingasölu, POP-UP viðburðir verða á svæðinu, afþreying verður fyrir börnin og Stjörnu-Sævar miðlar fróðleik um almyrkva á sólu í stuttum hljóðbrotum.

Við hvetjum fólk til að sækja viðburð í sínu hverfi og ef mögulegt er hvetjum við fólk til þess að ganga á viðburðinn. Þegar almyrkvinn nær hámarki mun náttúran sjálf taka sviðið og við fáum tækifæri til að verða vitni að einu magnaðasta sjónarspili hennar.

Staðsetningar viðburða eru við Ráðhúsið á Ásbrú, Kamb í Innri-Njarðvík, Skrúðgarðinn í Njarðvík og í holtunum ofan við Holtaskóla.

Fram undan er sannkölluð söguleg stund þegar Reykjanesbær fyllist af fólki sem kemur saman til að upplifa eitt magnaðasta sjónarspil náttúrunnar. Við hvetjum bæjarbúa jafnt sem gesti til að fjölmenna á viðburðina, njóta góðrar stemningar og samveru og verða vitni að þessum einstaka atburði sem fæstir fá tækifæri til að sjá oftar en einu sinni á ævinni!

Nánari dagskrá viðburðarins má finna hér.
Fleiri upplýsingar um sólmyrkvann hér