Almyrkvinn nálgast

Undirbúningur fyrir almyrkvann sem verður sýnilegur í Reykjanesbæ síðdegis 12. ágúst stendur nú sem hæst. Í tilefni af þessum merka náttúruviðburði hafa verið sett upp stór sólmyrkvagleraugu á fjórum stöðum í bænum sem lífga upp á umhverfið og minna á það einstaka augnablik sem fram undan er þegar tunglið gengur fyrir sólina.

Almyrkvi af þessari stærðargráðu hefur ekki sést frá Reykjanesskaga í margar aldir og er því um sögulegan viðburð að ræða fyrir íbúa og gesti. Von er á miklum fjölda ferðamanna á Reykjanesi þennan dag og mun Reykjanesbær standa fyrir sérstökum viðburðum undir heitinu Myrkvastund þar sem fólki gefst kostur á að koma saman og upplifa fyrirbærið saman.

Sólmyrkvagleraugun má finna á eftirfarandi stöðum:

  • Kambi í Innri-Njarðvík
  • Skrúðgarðinum í Ytri-Njarðvík
  • Á túninu ofan við Holtaskóla í Keflavík
  • Við ráðhúsið á Ásbrú

Á þessum stöðum verður dagskrá í tengslum við almyrkvann þann 12. ágúst. Nánari upplýsingar um viðburðina verða kynntar síðar. Íbúar eru hvattir til að undirbúa sig vel fyrir daginn og verða sér tímanlega út um viðurkennd sólmyrkvagleraugu. Nauðsynlegt er að nota slík gleraugu þegar horft er til sólar meðan á myrkvanum stendur. Hægt er að panta sólmyrkvagleraugu á solmyrkvi2026.is og einnig verða þau til sölu á Bókasafni Reykjanesbæjar.

Slíkir viðburðir færa líf og gleði í bæinn og skapa tækifæri fyrir fólk til að koma saman. Reykjanesbær hlakkar til að vera hluti af þessari skemmtilegu upplifun og taka á móti öllum þeim sem leggja leið sína í bæinn.