Alþjóðlegi netöryggisdagurinn

Foreldrar hvattir til að vera meðvitaðir um netöryggi barna

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn var haldinn 10. febrúar síðastliðinn. Dagurinn er tileinkaður því að efla vitund um örugga og ábyrga notkun á netinu, sérstaklega meðal barna og ungmenna.

Í því samhengi er vert að benda á fræðsluefni fyrir foreldra frá Netvís sem ber heitið Verkfærakista foreldra. Þar má finna gagnleg ráð, umræðuefni og hagnýt verkfæri sem styðja foreldra í að leiðbeina börnum sínum í stafrænum heimi.

Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að kynna sér efnið hér

Hvað er Netvís?

Netvís er miðstöð um félagslegt netöryggi og miðlalæsi á Íslandi. Hlutverk hennar er að hvetja með markvissri fræðslu, vitundarátökum og fjölbreyttri þjónustu til betri umgengni við tækni og miðla. Markmið hennar er að efla hugtakaskilning, vitund og valdeflingu almennings í stafrænu umhverfi.

Netvís leggur áherslu á að stuðla að félagslegri sjálfbærni í stafrænum heimi og að virða mannréttindi barna í stafrænu umhverfi, í samræmi við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og gildandi íslenska löggjöf.

Opið samtal skiptir máli

Reykjanesbær hvetur foreldra til að ræða reglulega við börn sín um netnotkun, áhættu og ábyrgð. Með fræðslu og opnu samtali má efla öryggi barna og sjálfstraust þeirra í stafrænum heimi.