Ályktun bæjarstjórnar Reykjanesbæjar vegna niðurskurðar HSS í fjárlögum 2011.

Ályktun vegna niðurskurðar HSS í fjárlögum 2011.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar mótmælir harðlega fyrirhuguðum tillögum um niðurskurð á grunnþjónustu í heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum sem framkoma í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2011.

Niðurskurður í heilbrigðisþjónustu er þungt högg fyrir þær þúsundir einstaklinga sem lifað hafa í skugga langvarandi atvinnuleysis og eru að missa heimili sín. Fjárlagatillögurnar eru ávísun á frekara atvinnuleysi 60-100 manna þar sem heilbrigðisstarfsmönnum er bætt í raðir atvinnulausra eða vísað úr landi.

Grunnþjónusta við íbúa verður stórlega skert ef fram fer sem horfir. Fæðingardeild og sjúkradeild leggjast af. Heimahjúkrun riðar til falls. Þessar þrjár stoðir og stolt í starfsemi HSS eru að bresta.

Benda má á að framlög ríkisins til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í samanburði við aðrar heilbrigðisstofnanir hafa hlutfallslega verið - og eru enn - lægri en til annarra heilbrigðistofnana miðað við íbúafjölda og enn hefur ekki verið tekið mið af nærveru stofnunarinnar við Keflavíkurflugvöll í fjárveitingum til hennar.

Engin sparnaðarrök mæla með því að flytja nærþjónustu við aldraða sjúka, fæðandi konur, hjartasjúklinga, krabbameinssjúklinga, líknandi meðferð deyjandi sjúklinga, lungnasjúklinga, sjúklinga í endurhæfingu og aðra sjúka og langveikra af svæðinu, þegar sýnt hefur verið að þessir þættir eru hagkvæmar reknir á HSS en LSH.

Í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra í gærkvöldi voru skýr orð um að vilji stjórnvalda standi til að starfa með íbúum Suðurnesja að lausnum á fjölþættum vanda af efnahagskreppu og atvinnuleysi. Hér er tækifæri til að athafnir fylgi orðum.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar skorar á þingmenn Suðurkjördæmis, þingheim allan og Ríkisstjórn Íslands að koma í veg fyrir að niðurskurðartillögur þessar verði að veruleika.

Einar Þ. Magnússon, Böðvar Jónsson, Kristinn Þ. Jakobsson, Gunnar Þórarinsson,
Björk Þorsteinsdóttir, Guðný Kristjánsdóttir, Árni Sigfússon, Eysteinn Eyjólfsson,
Baldur Þ. Guðmundsson, Magnea Guðmundsdóttir, Friðjón Einarsson.