- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Nú eru miklar ferðahelgar framundan sem hefur í för með sér mjög aukna umferð á vegum.
Þessi árstími hefur oft reynst erfiður í umferðinni og má nefna að árið 2006 létust 8 einstaklingar í umferðarslysum í ágúst mánuði einum saman, þar af 5 sem voru 26 ára eða yngri. Mikill árangur hefur náðst í fækkun umferðarslysa á undanförnum árum, en þrátt fyrir það verðum við að halda vöku okkar og ekki missa sjónar á því að aldrei má slaka á í umferðaröryggisstarfinu. Ísland má alls ekki við því að missa fólk í bílslysum. Við verðum að taka höndum saman og gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll og limlestingar í umferðinni.
Með tilkomu Landeyjarhafnar má gera ráð fyrir aukinni umferð á Suðurlandsvegi, og þá ekki síst ungs fólks á leið til og frá Vestmanneyjum um verslunarmannahelgina. Stjórn umferðarráðs beinir því sérstaklega til vegfarenda á þessari leið að aka varlega og sýna tillitssemi.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös