- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Frábær sumarglaðningur barst Tjarnarseli þar sem leikskólinn fékk úthlutað veglegum styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla á vegum Mennta- og menningarmálaráðuneytisins til þróunarverkefnisins "Garðurinn okkar og hringrás náttúrunnar: kennsla og nám á útileiksvæði leikskóla." Markmið verkefnisins er að þróa náms- og kennsluhætti sem tefla saman sköpun, sjálfbærni, vísindum og heilbrigði. Styrkurinn kemur sér mjög vel og er í beinu framhaldi af verkefninu sem farið var af stað með í fyrrasumar með foreldrum, börnum og starfsfólki Tjarnarsels.
Til viðbótar þessu hlutu foreldrar, börn og starfsfólk Tjarnarsels, í maíbyrjun, tilnefningu til Foreldraverðlauna Heimilis og skóla fyrir "Áskorun og ævintýri: Útinám og fjölnotagarður" og tók leikskólastjóri á móti viðurkenningu í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös