- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Uppfært 26. mars kl. 7:20
Neyðarstjórn sveitarfélagsins hefur farið yfir stöðuna. Skólahald fer fram í dag að óbreyttu. Þótt skólar séu opnir, þurfa foreldrum að meta öryggi barna sinna og verður tekið fullt tillit til þess ef foreldrar kjósa að halda börnum sínum heima en óskað er eftir því að skólar séu látnir vita ef forföll verða eða ef börn komast ekki í skólann. Skráð verður leyfi eða forföll hjá þeim börnum. Mikilvægt er að fylgja börnum inn og út úr skólabyggingum til að tryggja öryggi, sérstaklega með hliðsjón af veðri, færð og aðstæðum í nærumhverfi.
Allir vegir eru opnir og Umhverfismiðstöð sveitarfélagsins er í fullum gangi til að halda vegum færum.
Heima-og stuðningsþjónusta mun skerðast og verður þjónustu forgangsraðað til þjónustunotenda í dag. Dagþjónusta mun skerðast í dagdvölum eldri borgara, hæfingarstöðinni og Björginni en þjónusta í sólarhringsúrræðum hefur verið tryggð.
Miðvikudagur 25. mars kl. 13:30
Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun sem gildir frá kl. 07:00 til 13:00 á morgun, 26. mars.
Neyðarstjórn sveitarfélagsins hefur farið yfir stöðuna og fer skólastarf fram að svo stöddu nema annað verði sérstaklega tilkynnt. Forsjáraðilar eru eindregið hvattir til að meta hvort aðstæður séu öruggar fyrir börn að komast í og úr skóla. Mikilvægt er að fylgja börnum inn og út úr skólabyggingum til að tryggja öryggi, sérstaklega með hliðsjón af veðri, færð og aðstæðum í nærumhverfi.
Förum varlega og fylgjumst vel með veðurspám og upplýsingum frá Veðurstofu Íslands, viðbragðsaðilum, sveitarfélaginu og öðrum þjónustuaðilum, þar á meðal varðandi akstur innanbæjarstrætó og aðra samgönguþjónustu.
Við hvetjum öll til að huga að niðurföllum og lausamunum.
Neyðarstjórn mun funda kl. 7:00 í fyrramálið og verða upplýsingar uppfærðar ef forsendur breytast.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)