Árleg vorhreinsun Reykjanesbæjar verður 14. - 18. maí

Vel snyrtur bær er fallegur bær.
Vel snyrtur bær er fallegur bær.

Hin árlega vorhreinsun Reykjanesbæjar hefst föstudaginn 14. maí og stendur til 18. maí.

Við hvetjum íbúa til að nýta þessa daga til hreinsunar á görðum sínum og snyrta einnig tré og runna sem vaxa við gangstéttar og göngustíga.

Ef íbúar óska eftir aðstoð við að fjarlægja það sem tilfellur á þessum dögum, þá er hægt að hafa samband við Umhverfismiðstöð í síma 420-3200.