Árlegir íbúafundir bæjarstjóra að hefjast

Í dag 29.apríl hefjast árlegir íbúafundir í Reykjanesbæ. Fundirnir verða haldnir með bæjarstjóra og framkvæmdastjórum í Reykjanesbæ. 

Á fundunum verður m.a. fjallað um helstu verkefni framundan á þessu ári. Atvinnuverkefni og launakjör íbúa, breytingar í umhverfi, skrúðgarðar, strætó, íþróttir, félagsþjónusta, skólar og fræðsla, hjúkrunarheimli, Stapi og Hljómahöll, ofl. ofl.

Fundartímar eru sem hér segir:

  • Íbúar í Innri-Njarðvík, mánudaginn 29.apríl kl. 20:00 í Akurskóla
  • Íbúar í Njarðvík, þriðjudaginn 30.apríl kl. 20:00 í Njarðvíkurskóla
  • Íbúar í Höfnum, mánudaginn 6.maí kl. 20:00 í safnaðarheimilinu í Höfnum
  • Íbúar í Keflavík, sunnan Aðalgötu, þriðjudaginn 7.maí kl. 20:00 í Holtaskóla
  • Íbúar í Keflavík, norðan Aðalgötu, miðvikudaginn 8.maí kl. 20:00 í Heiðarskóla
  • Íbúar að Ásbrú, mánudaginn 13.maí kl. 20:00 í Háaleitisskóla