Aron sótti ráðstefnu LUCI Association

Aron Heiðar Steinsson, veitustjóri á Umhverfis- og framkvæmdasviði Reykjanesbæjar með kynningu á Re…
Aron Heiðar Steinsson, veitustjóri á Umhverfis- og framkvæmdasviði Reykjanesbæjar með kynningu á Reykjanesbæ á ráðstefnunni.

Aron Heiðar Steinsson, veitustjóri á Umhverfis- og framkvæmdasviði Reykjanesbæjar, sótti nýverið ráðstefnu LUCI Association í borginni Oulu í Finnlandi. LUCI er alþjóðlegt samstarfsnet borga sem vinna að þróun lýsingar í borgarumhverfi, þar sem fjallað er meðal annars um gæði lýsingar, sjálfbærni, hönnun og upplifun í borgarrýmum.

Á ráðstefnunni komu saman fulltrúar fjölmargra borga til að deila reynslu og hugmyndum um hvernig lýsing getur bætt lífsgæði íbúa, sérstaklega á norðlægum slóðum þar sem vetur eru langir og myrkrið ríkjandi stóran hluta ársins. Þar var meðal annars fjallað um hvernig lýsing getur verið hluti af borgarhönnun, list og menningu auk þess að gegna mikilvægu hlutverki í öryggi og vellíðan íbúa.

Aron kynnti einnig Reykjanesbæ á ráðstefnunni og fjallaði þar um þau sérstöku skilyrði sem móta ljósvist í bænum. Vegna staðsetningar sinnar, langra vetrarmyrkra og strandbæjaraðstæðna þarf lýsing í Reykjanesbæ að taka mið af salti, vindi og raka. Markmiðið er að auka öryggi og aðgengi en einnig að styðja við upplifun, mannlíf og staðaranda bæjarins.

Aron segir ferðina hafa verið bæði fróðlega og hvetjandi.

„Ég skrapp til Oulu í leit að uppskriftinni að góðri ljósvist á norðurslóðum. Þegar veturinn er langur og myrkrið mikið, þá skiptir góð ljósvist og myrkurgæði öllu máli. Eitt sem heillaði mig sérstaklega var hvernig sumar borgir hugsa um lýsingu líka sem list, ljósalistaverk sem geta verið tímabundin, til að lífga upp á myrkrið á ákveðnum mánuðum eða varanleg, sem hluti af staðaranda og borgarrými. Þegar þetta er gert vel, þá verður lýsing ekki bara “veita” hún verður upplifun.“

Að sögn Arons geta hugmyndir af þessu tagi verið áhugaverðar fyrir Reykjanesbæ, ekki síst í ljósi þess að bærinn hefur lengi lagt áherslu á ljós og lýsingu, meðal annars í tengslum við Ljósanótt.