Árshátíð Hæfingarstöðvarinnar

Frá árshátíð
Frá árshátíð

Árshátíð Hæfingarstöðvarinnar var haldinn 30. apríl s.l í safnaðarheimilinu í Innri Njarðvík. Soho sá um matinn sem ávallt er flottur. Okkar vinsæla happadrætti var á sínum stað með glæsilegum vinningum.

Leynigestur kvöldsins var töframaðurinn Daníel Örn, sem stóð svo sannarlega fyrir sínu. Nokkur vel valin söngatriði voru sýnd og að þeim loknum hófst dansleikur með hljómsveitinni Föruneytinu langt fram á kvöld.

Árshátíðin heppnaðist mjög vel í alla staði og má segja að þetta sé orðin einn af hápunktum ársins hjá okkur á Hæfingarstöðinni. Hæfingarstöðin þakkar þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem studdu þau með styrkjum og happadrættisvinningum, án þeirra væri þetta ekki eins glæsilegt.