- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Á fundi leikskólaráðs 28. ágúst sl. var samþykkt að stofna tímabundinn spretthóp sem hefur það verkefni að móta raunhæfar leiðir til að fjölga leikskólakennurum og öðru fagmenntuðu starfsfólki í leikskólum bæjarins.
Markmið hópsins er að finna lausnir sem styrkja mönnun leikskólanna og gera störf þeirra enn eftirsóknarverðari fyrir fagmenntað starfsfólk. Verkefnið er í samræmi við 100 daga áætlun meirihluta Sjálfstæðisflokks
og Miðflokks.
Næg mönnun leikskólanna er mikilvæg forsenda þess að hægt sé að nýta þau leikskólapláss sem eru til staðar og tryggja fjölskyldum leikskólaþjónustu sem fyrst. Uppbygging og fjölgun leikskólaplássa þarf því að haldast í hendur við markvissa vinnu við að fjölga starfsfólki og styrkja mönnun leikskólanna.
Spretthópurinn leggur áherslu á að byggja á fyrirliggjandi vinnu starfshóps um leikskólamál frá síðasta kjörtímabili og nýta þá þekkingu og greiningu
sem þar hefur þegar verið unnin.
Í hópnum sitja: Ásdís Ólafsdóttir formaður leikskólaráðs, B. Sif Stefánsdóttir leikskólafulltrúi, Ólöf Magnea Sverrisdóttir leikskólastjóri, Jenný Olga Eggertsdóttir leikskólakennari, Anna Lydía Helgadóttir sérkennslustjóri, Logi Þór Ágústsson frá leikskólaráði, Sverrir Örn Leifsson varamaður í leikskólaráði og Halldór Rósmundur Guðjónsson. Formaður leikskólaráðs mun jafnframt stýra starfi hópsins og leiða vinnu við mótun tillagna.
Spretthópurinn mun skila aðgerðaáætlun til leikskólaráðs í október 2026. Með stofnun hópsins er stigið mikilvægt skref í átt að því að efla enn frekar leikskólastarf í Reykjanesbæ og tryggja að þar starfi öflugt teymi fagfólks sem styður við velferð og nám yngstu íbúa sveitarfélagsins.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)