Átt þú jólapakka?

Eins og undanfarin ár stendur Flughótel fyrir jólapakkasöfnun í samstarfi við Velferðarsjóð Suðurnesja og Reykjanesbæjar.

Jólapökkunum verður safnað saman undir jólatré í Listasalnum á Flughóteli móti Bókasafni Reykjanesbæjar. +

Leikskólabörn á Holti sáu um að skreyta tréð með skrauti sem þau bjuggu til sjálf . Síðasti móttökudagur pakka er þriðjudagur 21.desember.

Úthlutanir fara fram á Flughóteli 21. og 22. desember milli kl.13:00 og 17:00.