Auglýst eftir styrkumsóknum í Menningarsjóð Reykjanesbæjar

Sirkus Íslands á listahátíð barna í Reykjanesbæ sl. vor.
Sirkus Íslands á listahátíð barna í Reykjanesbæ sl. vor.

Menningarsjóður Reykjanesbæjar auglýsir eftir umsóknum í tvenns konar styrki sjóðsins. Um er að ræða þjónustusamning við menningarhópa og verkefnastyrki til menningartengdra verkefna. Umsóknum þarf að skila í síðasta lagi 3. febrúar nk. á netfangið menningarfulltrui@reykjanesbaer.is eða í þjónustuver Ráðhúss Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12.

Þjónustusamningar við menningarhópa

Ákveðnu fjármagni verður varið í þjónustusamninga við menningarhópa í bæjarfélaginu árið 2019 eins og verið hefur. Um ýmis konar þjónustu af hálfu menningarhópanna getur verið að ræða s.s. þátttöku í viðburðum, námskeiðahald o.fl. í þeim dúr gegn ákveðinni greiðslu.

Verkefnastyrkir til menningartengdra verkefna

Ákveðnu fjármagni verður varið í verkefnastyrki á árinu 2019 sem miða að því að hægt verði að fá fjármagn til einstakra menningarverkefna sem standa munu bæjarbúum til boða á árinu.

Eyðublöð eru á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is undir Allar umsóknir: Menning. Með því að smella á þennan tengil opnast umsóknir