- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Menningar- og atvinnuráð Reykjanesbæjar auglýsir eftir umsóknum um tvenns konar styrki sjóðsins. Um er að ræða þjónustusamninga við menningarhópa og verkefnastyrki til menningartengdra verkefna. Umsóknum þarf að skila rafrænt í síðasta lagi 16. febrúar nk. í gegnum Mitt Reykjanes. Eftir innskráningu er smellt á Umsóknir á forsíðu og svo á viðeigandi umsókn undir Stjórnsýsla – Menningarmál.
Á reykjanesbaer.is er einnig hnappurinn Allar umsóknir á forsíðu. Þar undir Menning er smellt á viðeigandi umsókn sem flytur viðkomandi yfir á Mitt Reykjanes.
Ákveðnu fjármagni verður varið í þjónustusamninga við menningarhópa í bæjarfélaginu árið 2020 eins og verið hefur. Um ýmis konar þjónustu af hálfu menningarhópanna getur verið að ræða, s.s. þátttöku í viðburðum, námskeiðahald o.fl. í þeim dúr gegn ákveðinni greiðslu.
Hópar sem þegar eru með þjónustusamninga eru beðnir um að skila samantekt um starfsemi liðins starfsárs með umsókn sem rökstuðningi fyrir endurnýjun samnings.
Ákveðnu fjármagni verður varið í verkefnastyrki á árinu 2020 sem miða að því að hægt verði að fá fjármagn til einstakra menningarverkefna sem standa munu bæjarbúum til boða á árinu.
Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustuveri Reykjanesbæjar í síma 421 6700.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös