Bæjarráð með þungar áhyggjur af stöðunni í kjaraviðræðum ljósmæðra og ríkisins

Margir eru uggandi yfir stöðunni í kjaraviðræðum ljósmæðra og ríkisins. Margar ljósmæður hafa sagt …
Margir eru uggandi yfir stöðunni í kjaraviðræðum ljósmæðra og ríkisins. Margar ljósmæður hafa sagt upp störfum sem þýðir undirmönnun á fæðingardeild. Ljósmynd: Pixabay með leyfi til notkunar.

Bæjarráð Reykjanesbæjar ræddi á fundi sínum í morgun um kjaraviðræður ljósmæðra og ríkisins. Ráðið  lýsir yfir þungum áhyggjum vegna þeirrar stöðu sem uppi er í viðræðunum. Jafnframt skorar ráðið á samningsaðila að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að ná samningum áður en hættuástand myndast í landinu.